
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að greiðfært er að mestu á Suður- og Vesturlandi. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði. Óveður er hins vegar á norðanverðu Snæfellsnesi.Lesa meira

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að greiðfært er að mestu á Suður- og Vesturlandi. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði. Óveður er hins vegar á norðanverðu Snæfellsnesi.Lesa meira

ÍA lék öðru sinni á fjórum dögum þegar liðið heimsótti Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik á sunnudag. Liðin berjast á sitthvorum enda deildarinnar, Skagamenn við botninn en Fjölnir við toppinn. Á brattann var að sækja fyrir ÍA í leiknum og Skagamenn áttu erfitt uppdráttar gegn sterku Fjölnisliði. því heimamenn voru sterkari og leiddu…Lesa meira

Skallagrímur mætti Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardag. Leikið var í Borgarnesi og voru Skallagrímskonur í miklu stuði á heimavelli. Þær voru sterkari allan leikinn og leiddu frá upphafi til enda. Að lokum fór svo að þær höfðu fimm stiga sigur, 79-74. Skallagrímskonur skoruðu fyrstu stig leiksins en hann fór heldur rólega…Lesa meira

Snæfell og Njarðvík mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardag. Leikið var í Njarðvík og gerðu Snæfellskonur góða ferð suður með sjó. Vendipunkturinn í leiknum var stórkostlegur annar leikhluti Snæfellskvenna, þar sem þær skoruðu 34 stig gegn níu og gerðu út um leikinn. Að lokum fór svo að sigur þeirra var æði stór,…Lesa meira

Nýliðaslagur var í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á föstudag þegar Skallagrímur tók á móti Þór frá Akureyri. Leikurinn var jafn og spennandi lengst af. Skallagrímsmenn voru heldur sterkari framan af fyrri hálfleik en í þeim síðari snerist taflið við og Þórsarar höfðu að lokum sigur, 89-100. Heimamenn byrjuðu af krafti og náðu undirtökunum snemma…Lesa meira

Stofnaður hefur verið í Reykjavík fjölþjóðlegur skóli sem býður upp á fjögurra mánaða nám í ráðgjöf við ofáts- og þyngdarvanda. Námið er fyrir fagfólk í heilbrigðis- og félagsgreinum, íþróttakennara, einkaþjálfa, markþjálfa, fíkniráðgjafa og alla þá sem vilja auka þekkingu sína á ráðgjöf og meðferðum við þessum vanda. Námið er einnig opið þeim sem eru áhugasamir…Lesa meira

Stjórn Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð sendi Faxaflóahöfnum erindi 12. desember síðastliðinn þar sem óskað var eftir að lóðarleigusamningi GMR ehf. á Grundartanga verði sagt upp. Faxaflóahafnir afgreiddu erindið á fundi sínum síðastliðinn föstudag með þessum hætti: „Um lóð GMR á Grundartanga er lóðarleigusamningur í gildi. Það er afstaða stjórnar Faxaflóahafna sf. að fyrirtækið eigi ávallt að…Lesa meira

Skarfar halda sig venjulega við sjóinn. Þessi var hins vegar kominn lengst upp í sveit fyrir skömmu, nánar tiltekið við Reykjadalsá miðja vegu milli Grímsstaða og Kópareykja. Líklega hefur fuglinn verið á höttunum eftir seiðum úr ánni. Fuglinn fældist ekki manninn og komst Björn Húnbogi Sveinsson ljósmyndari býsna nálægt honum.Lesa meira

Á fundi í stjórn Faxaflóahafna sf. síðastliðinn föstudag voru málefni Silicor Materials á Grundartanga til umræðu. Eins og kunnugt er hefur fyrirtækið fengið 22 ha lóð úthlutað í landi Kataness til byggingar sólarkísilverksmiðju, en verkefnið hefur dregist af ýmsum sökum, meðal annars vegna fjármögnunar- og raforkukaupasamninga. Fyrir fundi Faxaflóahafna lá beiðni Silicor um að ákvæði…Lesa meira

Blaðamannafundi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er nú nýlokið, en hann var í beinni útsendingu á fjölmiðlum. Í upphafi hans var lesin upp yfirlýsing þess efnis að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi síðdegis í dag fundið lík Birnu Brjánsdóttur, sem saknað hefur verið frá því laugardaginn 14. janúar. Lík hennar fannst í fjörunni við Selvogsvita á Reykjanesi og ekki…Lesa meira