Fréttir

true

Sameiginlegur vorfundur smábátasjómanna verður á fimmtudaginn

Fimmtudaginn 9. apríl halda Landssamband smábátaeigenda, Samgöngustofa og Slysvarnafélagið Landsbjörg sameiginlegan vorfund smábátasjómanna. Fyrirkomulag þetta er nú reynt í fyrsta sinn. Fundurinn er opinn öllum, fer fram á netinu og fjallað verður um öryggi sjómanna nú þegar styttist í strandveiðar. Sérstök áhersla verður lögð á frágang gúmmíbjörgunarbáta um borð. Samhliða útsendingunni verður opið hús á…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Borgarfjarðarbrú næstu mánuði

Veitur vinna nú undir Borgarfjarðarbrú við að endurnýja og stækka lagnir fyrir kalt og heitt vatn fyrir vaxandi samfélag í Borgarnesi. Þetta kom fram í tilkynningu sem Veitur sendu frá sér fyrir páska. Framkvæmdin er samstarf Veitna, Rarik og fjarskiptafyrirtækjanna Mílu og Ljósleiðarns. Áætlað er að verkinu ljúki í nóvember á þessu ári. Til að…Lesa meira

true

Hver að verða síðastur að tilkynna breytt lögheimili

Tilkynningar um breytt lögheimili þurfa að hafa borist Þjóðskrá fyrir klukkan 12 miðvikudaginn 8. apríl nk. til að öðlast gildi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí 2026. Skráning kjósenda á kjörskrá miðast við skráningu lögheimilis kl. 12 á viðmiðunardegi kjörskrár 8. apríl 2026. „Því er mikilvægt að tilkynningar um lögheimilis flutning berist Þjóðskrá eigi…Lesa meira

true

Framboðslisti Íbúahreyfingarinnar í Hvalfjarðarsveit

Íbúahreyfing Hvalfjarðarsveitar hefur birt framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi. Kosið var persónukjöri í sveitarfélaginu fyrir fjórum árum. Þetta er fyrsti listinn sem lagður er fram. Á lista Íbúahreyfingarinnar eru alls 14 nöfn, en efstu þrjú sæti skipa: Þóra Margrét Júlíusdóttir skipulagsfræðingur Svarfhóli í fyrsta sæti, Baldur Þór Ketilsson kerfisfræðingur Leyni í öðru og…Lesa meira

true

Víða ekkert ferðaveður í dag – english below

Ábending til vegfarenda frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar: „Austan hríðarbylur gengur yfir landið í dag, mánudag, sem hefur áhrif á færð og vegalokanir víða um land. Vindur nær stormstyrk í öllum landshlutum og jafnvel roki sunnanlands. Vegfarendur eru hvattir til að sýna gát og kynna sér aðstæður, viðvaranir og lokanir áður en lagt er í ferðalög.“ Blizzard…Lesa meira