Borgarfjarðarbrúin er lengsta brú landsins, 520 metrar og lagnir fyrir ómissandi innviði fyrir Borgarnes liggja undir brúargólfinu. Ljósm. gj

Framkvæmdir við Borgarfjarðarbrú næstu mánuði

Veitur vinna nú undir Borgarfjarðarbrú við að endurnýja og stækka lagnir fyrir kalt og heitt vatn fyrir vaxandi samfélag í Borgarnesi. Þetta kom fram í tilkynningu sem Veitur sendu frá sér fyrir páska. Framkvæmdin er samstarf Veitna, Rarik og fjarskiptafyrirtækjanna Mílu og Ljósleiðarns. Áætlað er að verkinu ljúki í nóvember á þessu ári. Til að tryggja að Borgarnes sé tengt nauðsynlegum innviðum á meðan á vinnu stendur þarf að leggja bráðabirgðalagnir fyrir byggðina og þeim verður einungis komið fyrir uppi á brúnni sjálfri.