Árni Freyr og faðir hans Stefán Jónsson á Grími AK að landa á Arnarstapa. Ljósm. úr safni Skessuhorns/af

Sameiginlegur vorfundur smábátasjómanna verður á fimmtudaginn

Fimmtudaginn 9. apríl halda Landssamband smábátaeigenda, Samgöngustofa og Slysvarnafélagið Landsbjörg sameiginlegan vorfund smábátasjómanna. Fyrirkomulag þetta er nú reynt í fyrsta sinn. Fundurinn er opinn öllum, fer fram á netinu og fjallað verður um öryggi sjómanna nú þegar styttist í strandveiðar. Sérstök áhersla verður lögð á frágang gúmmíbjörgunarbáta um borð. Samhliða útsendingunni verður opið hús á 16 stöðum um land allt, í samstarfið við einingar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Þar geta sjómenn úr nærumhverfinu komið saman, fengið sér kaffi og fylgst með fundinum í sameiningu. Hér á Vesturlandi verður slíkur hittingur á eftirfarandi stöðum: Á Akranesi verður komið saman í Jónsbúð, Akursbraut 13 og munu Slysavarnadeildin Líf og Björgunarfélag Akraness standa að því. Í Grundarfirði mun björgunarsveitin Klakkur opna hús sitt að Sólvöllum 17a. Loks mun Björgunarsveitin Lífsbjörg, Slysavarnadeidin Helga Bárðar og Slysavarnadeildin Sumargjöf opna hús sitt í Björgunarmiðstöðinni við Hafnargötu 1 í Rifi.