
Hver að verða síðastur að tilkynna breytt lögheimili
Tilkynningar um breytt lögheimili þurfa að hafa borist Þjóðskrá fyrir klukkan 12 miðvikudaginn 8. apríl nk. til að öðlast gildi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí 2026. Skráning kjósenda á kjörskrá miðast við skráningu lögheimilis kl. 12 á viðmiðunardegi kjörskrár 8. apríl 2026. „Því er mikilvægt að tilkynningar um lögheimilis flutning berist Þjóðskrá eigi síðar en 7. apríl svo búið verði að skrá breytingarnar í þjóðskrá fyrir útgáfu kjörskrár. Vefuppflettið Hvar á ég að kjósa verður aðgengilegt á vef Þjóðskrár 10. apríl nk. þar sem kjósendur geta athugað hvar þeir eru á kjörskrá. Nánari upplýsingar um kosningarnar má finna á kosningar.is“