Fréttir

true

Samið við þrjá efnilega leikmenn

Í síðustu viku skrifuðu þrír ungir og efnilegir knattspyrnumenn undir sinn fyrsta samning við ÍA. Þetta eru þeir Oskar Wasilewski, Sigurð Hrannar Þorsteinsson og Þór Llorens Þórðarson. Allir hafa þeir leikið með yngri flokkum ÍA undanfarin ár og æft með meistaraflokki. Oskar hefur leikið 101 leik sem skráðir eru hjá KSÍ í 2.-4. og á…Lesa meira

true

Sveinbjörn og Lárus tvímenningsmeistarar

Aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gærkvöldi. Í mótinu tóku þátt sextán pör. Líkt og oft á undanförnum árum voru það félagarnir Sveinbjörn Eyjólfsson og Lárus Pétursson sem báru sigur úr býtum með 60,9% skori, komu sjóðheitir til leiks eftir sigur á Þorsteinsmóti á laugardaginn. Í öðru sæti urðu Heiðar Baldursson og Logi Sigurðsson með 59,3%…Lesa meira

true

Kór Akraneskirkju stefnir á nýárstónleika

Laugardaginn 6. janúar klukkan 20, stendur Kór Akraneskirkju fyrir nýárstónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi. Á efnisskránni verða m.a. íslensk dægurlög en einnig verður fluttur lagaflokkur sem kallast Feel the spirit og inniheldur sjö afrísk-ameríska söngva. Þessi lagaflokkur hefur ekki áður verið fluttur hérlendis. Kórfélagar verða ekki einir á ferð því sett hefur verið saman kammersveit…Lesa meira

true

Rætist loks úr þorskveiði ísfisktogara HB Granda

Samkvæmt yfirliti Birkis Hrannars Hjálmarssonar, útgerðarstjóra ísfisktogara HB Granda, hefur þorskveiði togaranna verið slök í haust og það sem af er vetri. Þannig var staðan allt fram að síðustu helgi en þá fengu skipin mjög góðan þorskafla. „Fara þarf tíu ár aftur í tímann, eða allt aftur til þess tíma þegar þorskkvótinn var skertur verulega,…Lesa meira

true

Luba tekur við þjálfun kvennaliðs Víkings

Varnarmaðurinn Tomasz Luba í knattspyrnuliði Víkings Ólafsvík hefur lagt skóna á hilluna. Hann var nýverið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi Ó. „Á sama tíma og við bjóðum Tomasz velkominn til starfa á nýjum vettvangi innan félagsins þökkum við Birni Sólmari Valgeirssyni fyrir gríðarlega vel unnin störf í þágu kvennaboltans í Ólafsvík undanfarin ár,“ segir…Lesa meira

true

Sjóræningjadagur á Eldhömrum

Krakkarnir á Eldhömrum í Grundarfirði, sem er elsta deild leikskólans, brutu upp hefðbundna skólaviku á dögunum og héldu sjóræningjadag. Þá buðu þau ættingjum og vinum að koma og skoða afraksturinn sem var glæsilegur. Búið var að föndra stórt sjóræningjaskip á einn vegginn og allir krakkarnir voru búin að gera sína eigin sjóræningjasögu sem hægt var…Lesa meira

true

Skora á bæjaryfirvöld að tryggja nýliðun í slökkviliðinu

Í bréfi sem Félag slökkviliðsmanna á Akranesi sendi bæjarráði Akraneskaupstaðar í síðustu viku er lýst þungum áhyggjum af skorti á nýliðun í Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Í bréfinu sem Leiknir Sigurbjörnsson formaður félagsins skrifar segir m.a.: „Árið 2007 voru síðast ráðnir inn nýliðar í Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Kláruðu fimm slökkviliðsmenn nýliðaþjálfun og urðu fullgildir…Lesa meira

true

Hallbera Guðný til Vals

Knattspyrnufélagið Valur á Hlíðarenda í Reykjavík samdi í liðinni viku við þrjár öflugar knattspyrnukonur til næstu þriggja ára. Þetta voru þær Elín Metta Jensen, Mist Edvardsdóttir og síðast en ekk síst landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir sem brátt lætur af atvinnumennsku, en hún lék síðast með Djurgården í Svíþjóð. Hallbera er 31 árs og hefur spilað…Lesa meira

true

Snæfell lagði Vestra í jöfnum leik

Snæfell vann góðan sigur á Vestra, 111-94, þegar liðin mættust í níundu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik i gær. Leikið var í Stykkishólmi og höfðu heimamenn heldur undirtökin þó leikurinn væri jafn og spennandi. Snæfellingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og léku vel fyrstu mínúturnar. Áræðni og þolinmæti einkenndi leik þeirra í upphafi. Þeir…Lesa meira

true

ÍA tapaði fyrir Fjölni í fjörugum leik

Botnlið ÍA í tók á móti Fjölni 1. deild karla í körfuknattleik að kvöldi föstudags. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur og fjörugur en að endingu náðu Fjölnismenn tökum á leiknum og höfðu 13 stiga sigur, 86-99. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi og þau skiptust á að leiða leikinn. Aldrei munaði meira en örfáum stigum…Lesa meira