Fréttir

true

Ljótar kartöflur valdar Matarsproti ársins

Matarsprotinn 2017 var afhentur í Sjávarklasanum í Reykjavík í gær. Ljótu kartöflurnar hlutu viðurkenninguna sem áhugaverðasti sproti ársins. Markmið Matarsprotans er að vekja athygli á þeim krafti og grósku sem einkennir nýsköpun í mat og drykk. Að Matarsprotanum 2017 standa Íslenski sjávarklasinn og Landbúnaðarklasinn. Matarsprotinn var fyrst veittur á síðasta ári og þá hlaut Eimverk…Lesa meira

true

UMSB auglýsir starf framkvæmdastjóra

Í auglýsingu í Skessuhorni sem kom út í dag kallar Ungmennasamband Borgarfjarðar eftir umsóknum um starf framkvæmdastjóra sambandsins. Um fullt stöðugildi er að ræða og í boði fjölbreytt starf á sviði íþrótta- og æskulýðsmála í héraðinu. Pálmi Blængsson viðskiptafræðingur hefur sinnt starfinu undanfarin fjögur ár en hann hefur nú ráðið sig til starfa hjá bifreiðaumboðinu…Lesa meira

true

Glæraísing um vestanvert landið

Ástæða er til að benda fólki á að nú eru aðstæður fyrir glæraísingu víða um vestanvert landið. Spáð er hægri vestlægri eða breytilegri átt í dag með súld eða rigningu í landshlutanum. Þegar hlýnar svona í kjölfar mikils frosts, eins og verið hefur undanfarna daga, frýs úrkoman sem fellur á kalda jörðina og getur myndað…Lesa meira

true

Þrjú sveitarfélög á Vesturlandi eiga kost á ljósleiðarastyrk

Styrkbeiðnir vegna umsókna sveitarfélaga í verkefnið Ísland ljóstengt voru opnaðar síðastliðinn fimmtudag. Samtals bárust fjarskiptasjóði 102 styrkbeiðnir frá 25 sveitarfélögum til lagningar ljósleiðara í dreifbýli utan markaðssvæða. Mat á umsóknum liggur fyrir og hafa þær verið gerðar aðgengilegar á vef Stjórnarráðsins. Alls eiga 23 sveitarfélög kost á samtals 450 milljóna króna styrk til að tengja…Lesa meira

true

Landsátaki við leit að mergæxli lýkur á föstudaginn

Söfnun þátttakenda í Blóðskimun til bjargar – þjóðarátaki gegn mergæxlum, einni viðamestu vísindarannsókn sinnar tegundar frá upphafi, lýkur nú á föstudag, þann 1. desember. Nú þegar hafa hartnær 80 þúsund einstaklingar af landinu öllu þegið boð um að taka þátt í þessari mikilvægu rannsókn en 148 þúsund einstaklingum, sem fæddir eru árið 1975 eða fyrr,…Lesa meira

true

Olís bætir aðstöðuna við Norðurtangann

Þessa dagana standa yfir framkvæmdir við löndunarkantinn á Norðurtanga í Ólafsvíkurhöfn. Verið er að setja upp olíudælu og endurbæta þá aðstöðu sem Olís býður upp á, en gamla dælan var staðsett við endann á einni flotbryggjunni og var hún orðin gömul og úr sér gengin. Nýja dælan er öflug og hraðvirk með 10.000 lítra tanki…Lesa meira

true

Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness

Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram fimmtudaginn 14. desember nk. frá klukkan 13-17 í húsi Rauða krossinns að Skólabraut 25a á Akranesi. Í tilkynningu frá nefndinni kemur fram að tekið verður á móti umsóknum dagana 4.-7. desember í símum 859-3000 (María) og í 859-3200 (Svanborg) frá kl. 11-13. „Allir umsækjendur þurfa að skila inn staðgreiðsluskrá þar…Lesa meira

true

Fundaröð um framtíð ferðaþjónustu á Vesturlandi

Opnir fundir standa nú yfir víðsvegar um Vesturland þar sem til umfjöllunar er framtíðarsýn ferðamála á Vesturlandi. Fyrsti fundurinn var haldinn í Dalasýslu. Síðdegis í dag, þriðjudag, verður fundur fyrir íbúa í Borgarbyggð og Skorradalshreppi haldinn í húsnæði LbhÍ á Hvanneyri. Á morgun verður fundur fyrir íbúa á Akranesi og Hvalfjarðarsveit haldinn á Safnasvæðinu í…Lesa meira

true

Krafa um samgöngur við Flatey

„Sveitarstjórn Reykhólahrepps gerir þá skýru kröfu til Vegagerðarinnar, að hún tryggi eðlilegar samgöngur og þjónustu við íbúa Flateyjar á meðan á viðgerð á flóabátnum Baldri stendur yfir,“ segir í tilkynningu frá sveitarstjórn. „Ekki sé boðlegt að íbúar í eynni búi við samgönguleysi svo vikum skipti. Eins og staðan er í dag, er ekki útlit fyrir…Lesa meira

true

Unnur Ýr endurnýjar samning sinn við ÍA

Knattspyrnukonan Unnur Ýr Haraldsdóttir hefur samið að nýju við ÍA og mun leika með liðinu í 1. deild kvenna næsta sumar. Unnur er 23 ára gömul og hefur leikið allan sinn feril með ÍA. Hún steig sín fyrstu skref með meistaraflokki árið 2009, þá ekki orðin 15 ára gömul. Síðan þá hefur hún leikið óslitið…Lesa meira