
Hálkublettir eða hálka eru nokkuð víða á vegum á Vesturlandi. Þó er flughálka í Þverárhlíð og Hálsasveit í Borgarfirði.Lesa meira

Hálkublettir eða hálka eru nokkuð víða á vegum á Vesturlandi. Þó er flughálka í Þverárhlíð og Hálsasveit í Borgarfirði.Lesa meira

Fiskvinnslan Norðursýn ehf. er nýtt fyrirtæki á Akranesi. Starfsemi þess hófst í síðasta mánuði þegar fyrstu afurðunum var pakkað í umbúðir. „Undirbúningur hefur staðið yfir nokkuð lengi en við gátum loksins byrjað í október þegar fyrstu fiskarnir voru flakaðir. Mánuðina þar á undan hafði verið unnið hörðum höndum að því að gera húsnæðið klárt,“ segir…Lesa meira

Vinir Kidda Jens hafa boðað til styrktarleiks í knattspyrnu á Akranesi laugardaginn 9. desember næstkomandi kl. 11:00. Þá mætast karlalið ÍA og Vals í Akraneshöllinni. Aðgangseyrir er kr. 2.000 og innifalið í verðinu er kaffihlaðborð. Allur ágóðinn af sölu aðgöngumiða rennur óskiptur til styrktar Kristni Jens Kristinssyni, sem oftast er kallaður Kiddi Jens. Hann hefur…Lesa meira

Ólafsdalur er eitt merkilegasta minjasvæði landsins ekki síst vegna margvíslegra búnaðarumbóta og framkvæmda Torfa Bjarnasonar skólastjóra og manna hans þar. Torfi var einn af forgöngumönnum votheysgerðar hérlendis – aðferðar sem í fyrstu var jafnan nefnd súrheysgerð. Árið 1888 birti Torfi allrækilega grein í Búnaðarriti (2. árg., bls. 95-115) þar sem hann greindi frá aðferðinni og…Lesa meira

Vinkonurnar Líf Lárusdóttir og Díana Bergsdóttir opnuðu laugardaginn 11.11 klukkan 11 vefsíðuna framinn.is, þar sem þær hyggjast birta jákvæðar og hvetjandi greinar fyrir alla sem huga að sínum frama. „Hugmyndin hefur verið að malla í nokkuð langan tíma en við sáum alltaf fyrir okkur vefsíðu þar sem fjallað væri á hvetjandi hátt um öll þau…Lesa meira

Í tilefni hálfar aldar afmælis Tónlistarskóla Borgarfjarðar var settur upp söngleikurinn Móglí, sem byggir á sögum Rudyard Kipling, Jungle Book, um mannsbarnið Móglí sem elst upp hjá úlfafjölskyldu. Söngleikurinn var frumsýndur síðastliðinn föstudag fyrir fullum sal í Hjálmakletti. Ekki var annað að sjá en sýningargestir hafi allir skemmt sér konunglega, enda mjög vel heppnuð. Leikararnir…Lesa meira

Frjálsíþróttaráð HSH stóð fyrir jólamóti í frjálsum íþróttum innanhúss í íþróttahúsi Snæfellsbæjar, laugardaginn 25. nóvember síðastliðinn. Rúmlega 40 keppendur af Snæfellsnesi tóku þátt og voru þeir á aldrinum 3ja til 82ja ára. Á mótinu kepptu átta ára og yngri í langstökki með og án atrennu og 35 m hlaupi. Keppendur 9-10 ára kepptu í sömu…Lesa meira

Í Skessuhorni í dag sem kom út í dag fylgja upplýsingar um dagskrá á aðventu víðsvegar um Vesturland; á vegum sveitarfélaga, í sóknum eða hjá félögum og fyrirtækjum. Ljóst er að fjölbreytt menning er framundan og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Öllum þeim sem standa fyrir viðburðum var boðið að láta vita…Lesa meira

Innri-Hólmur í Hvalfjarðarsveit er einn elsti kirkjustaður á landinu. Segir í Landnámu að þar hafi verið reist kirkja nokkuð fyrir kristnitöku árið 1000. Vitað er að þar var kirkja þegar tíundarlög voru sett árið 1096. Kirkjan sem nú stendur í Innra-Hólmi var vígð árið 1892 og sóknarbörn fögnuðu af því tilefni 125 ára vígsluafmæli kirkjunnar…Lesa meira

Söfnunarátakið Bleikar og bláar heyrúllur sem bændur, dreifingaraðilar og framleiðandi heyrúlluplasts standa að, skilaði 1,2 milljónum króna til Krabbameinsfélagsins í ár. Styrkurinn rennur til rannsókna Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins á brjóstakrabbameini og blöðruhálskirtilskrabbameini. Á síðasta ári slógu Bleikar heyrúllur í gegn og var ætlað að vekja athygli á árvekni um brjóstakrabbamein. Í sumar bættust bláar heyrúllur við…Lesa meira