Fréttir

true

Lesið milli lína í dagbókum Kristjáns X.

Snorrastofa í Reykholti minnist Fullveldisdags Íslendinga með því að Borgþór S. Kjærnested rithöfundur flytur fyrirlestur í Bókhlöðu Snorrastofu, annað kvöld, þriðjudaginn 28. nóvember, um dagbækur Kristjáns X. Danakonungs. Borgþór fékk leyfi Margrétar drottningar til að lesa dagbækur afa hennar, þar sem skráð eru samskipti hans við Íslendinga og íslenskar aðstæður á árunum 1908-1932. Bækurnar byrjaði…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði í fremur daufum Vesturlandsslag

Snæfell og Skallagrímur mættust í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik á laugardag. Leikurinn fór fram í Stykkishólmi en það voru gestirnir úr Borgarnesi sem höfðu betur, 56-67. Snæfellskonur áttu mjög erfitt uppdráttar í upphafi leiks og skoruðu aðeins sex stig í fyrsta leikhluta. Þeim gekk illa að sækja og hittu ekki úr skotum sínum.…Lesa meira

true

Tekur þátt í Norðurlandameistaramótinu um næstu helgi

Inga Elín Cryer sundkona frá Akranesi keppti á Íslandsmeistaramótinu í sundi í 25 m laug fyrr í þessum mánuði. Á mótinu synti hún 100m flugsund og varð Íslandmeistari á tímanum 1.02.26. Bætti hún tíma sinn um eina sekúndu og náði jafnframt lágmarki á Norðurlandameistaramótið sem haldið verður í Reykjavík dagana 1. til 3. desember nk.…Lesa meira

true

Fyrirmyndardagurinn tókst vel víðvegar um Vesturland

Fyrirmyndardagurinn var síðastliðinn föstudag, en þennan dag gefst atvinnuleitendum og einstaklingum með skerta starfsorku tækifæri til að heimsækja hina ýmsu vinnustaði og kynnast starfseminni þar. Markmið Fyrirmyndardagsins er að fyrirtæki og stofnanir bjóði atvinnuleitendum með skerta starfsgetu að vera gestastarfsmenn í einn dag, eða hluta úr degi. Dagurinn er því mikilvægur til að auka möguleika…Lesa meira

true

Útvarp Akraness í loftinu um næstu helgi

Það er orðið fastur liður þegar aðventan gengur í garð á Akranesi að Sundfélag Akraness setji Útvarp Akraness í loftið. Það verður að þessu sinni dagana 1. – 3. desember, fyrstu helgina í aðventu. Að venju verður boðið upp á fjölbreytta útvarpsdagskrá, efni fyrir alla aldurshópa bæði tónlist og viðtalsþætti sem snúa að daglegum málum…Lesa meira

true

Heimamenn sigursælir á fyrsta Þorsteinsmótinu

Síðastliðinn laugardag var spilað í Logalandi í Borgarfirði eitt sterkasta briddsmót sem haldið hefur verið í landshlutanum um langt skeið. Um silfurstigamót er að ræða í tvímenningi og það helgað minningu Þorsteins Péturssonar kennara frá Hömrum sem lést fyrr á þessu ári. Þorsteinn var mikill spilamaður alla tíð og átti ásamt fleirum þátt í að…Lesa meira

true

Dagskrá á aðventu kynnt í næsta blaði

Í Skessuhorni í næstu viku verður kynnt hvað verður á dagskrá víðsvegar um Vesturland á aðventu og í aðdraganda jóla. Getið verður þess sem um verður að vera hvort sem það er á sviði menningar, lista, sókna eða sveitarfélaga. Þeir sem standa fyrir viðburðum eru hvattir til að nýta sér þessa umfjöllun. Anna Rósa Guðmundsdóttir…Lesa meira

true

Víðsjá falin byggingarstjórn grunnskólabygginar

Á fundi byggingarnefndar Grunnskólans í Borgarnesi 21. nóvember sl. voru lagðar fram þrjár umsóknir um byggingarstjórn við stækkun skólans og endurbætur. Byggingarnefndin lagði til að samið verði við verkfræðistofuna Víðsjá ehf. um byggingarstjórn yfir framkvæmdir við skólann. Á fundinum var farið yfir stöðu útboðsganga og fram kom að unnið er að síðustu yfirferð af verklýsingum…Lesa meira

true

Enn er lokað á Holtavörðuheiði

Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú rétt í þessu kemur fram að á Vesturlandi er víðast hálka eða snjóþekja en Holtavörðuheiði er enn lokuð. Næst verður staðan tekin þar núna um hádegið.    Lesa meira