Fréttir

true

Skora á Sæferðir að hraða viðgerð eða fá annað skip

Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni varð vélarbilun í Breiðafjarðarferjunni Baldri í byrjun vikunnar og hefur ferjan verið fjarri góðu gamni síðan. Í fyrstu var búist við að skipið yrði ekki sjófært í nokkra daga en við nánari athugun reyndist bilunin alvarlegri en talið var í fyrstu. Áætlaður viðgerðartími vegna bilunarinnar er þrjár…Lesa meira

true

Skallagrímur stakk af í síðari hálfleik

Skallagrímur vann öruggan heimasigur á FSu, 111-83, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Hlutskipti liðanna í deildinni er ólíkt, Skallagrímur er á toppnum en FSu-menn í áttunda og næstneðsta sæti með aðeins einn sigurleik í farteskinu. Fyrirfram bjuggust því flestir við sigri Skallagríms en það voru gestirnir sem náðu yfirhöndinni…Lesa meira

true

Lokað á heiðum og víða erfið færð á vegum

Stórhríð er nú við sunnanverðan Hvalfjörð og þæfingsfærð. Á öðrum svæðum á Vesturlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja og sumsstaðar hvasst. Brattabrekka er ófær og sömuleiðis Holtavörðuheiði, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði. Á Holtavörðuheiði er búin að vera mjög erfið færð undanfarna daga og hafa björgunarsveitir og fleiri ítrekað orðið að koma vegfarendum til aðstoðar. Því…Lesa meira

true

Nemendur í Grundaskóla safna fyrir börn í Malaví

Nemendur og starfsmenn í Grundaskóla á Akranesi hófu síðastliðinn mánudag árlega söfnun sem kallast „Breytum krónum í gull.“ Í því er safnað fyrir eitt fátækasta ríki heims, Malaví. Þennan dag komu hjónin Sveinn Kristinsson formaður RKÍ og Borghildur Jósúadóttir í skólann til að segja nemendum frá heimsókn þeirra til Malaví fyrr á þessu ári. „Frá…Lesa meira

true

Nýr veggur við Akranesvita

Framkvæmdir hafa staðið yfir við Akranesvita að undanförnu en verið er að laga vegg og stétt sem sjórinn hefur brotið niður í tímans rás í kringum vitann. Í síðustu viku var nýr veggur steyptur upp.Lesa meira

true

Skoða seinkun klukkunnar

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að kanna ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan landsmanna af því að leiðrétta klukkuna hér á landi til samræmis við gang sólar. „Miðað við sólargang og legu landsins er klukkan á Íslandi of fljót. Nokkuð hefur verið fjallað um að þessi munur skekki þær upplýsingar sem lífsklukkan nýtir til…Lesa meira

true

Baldur siglir ekki í um mánaðartíma

Eins og fram hefur komið í Skessuhorni varð vélarbilun í Breiðafjarðarferjunni Baldri í byrjun vikunnar og var búist við að skipið yrði ekki sjófært í nokkra daga. Við nánari skoðun reyndist bilunin meira og er áætlaður viðgerðartími þrjár til fjórar viku. Skipið ætti því að komast í siglingar að nýju fyrir jól. „Rétt er að…Lesa meira

true

Sjö bíla árekstur á Holtavörðuheiði

Búið er að loka Holtavörðuheiði fyrir umferð en þar er nú slæmt veður og ekkert ferðaveður á næstunni miðað við spár. Fyrr í dag varð sjö bíla árekstur á heiðinni. Þrír sem í bílunum voru slösuðustu og voru fluttir undir læknishendur suður fyrir heiðina. Meiðsli þeirra eru þó ekki talin alvarleg. Björgunarsveitir, lögregla og sjúkraflutningabílar…Lesa meira

true

Besta svarthvíta myndin

Þessa skemmtilegu mynd tók Sigrún Ólafsdóttir bóndi í Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal í fjárhúsunum sínum. Þarna er búið að gefa á garðann. Glöggt má sjá að búið er að raða í krærnar fyrir fengitímann sem brátt fer í hönd. Sigrún birti mynd sína á Facebook og fékk ýmsar skemmtilegar athugasemdir; eins og aðskilnaðarstefnu, lopapeysumynstur og litakóðun.…Lesa meira

true

Komið að frumsýningu á Móglí

Söngleikurinn Móglí verður frumsýndur í Borgarnesi á morgun föstudag. Í uppfærslunni taka um fimmtíu manns á öllum aldri þátt en uppfærslan er gerð í tilefni 50 ára afmælis Tónlistarskóla Borgarfjarðar á þessu ári. Æfingar hafa staðið frá því í ágúst undir leikstjórn Halldóru Rósu Björnsdóttur leikkonu. Leikgerðin er eftir Illuga Jökulsson og tónlistin að mestu…Lesa meira