Fréttir

true

„Kaldasta kveðja sem mögulega hefði mátt senda bændum“

Gengið hefur verið frá skipun nýrrar verðlagsnefndar búvara. Kristrún M Frostadóttir hagfræðingur er formaður nefndarinnar tilnefnd af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur landbúnaðarráðherra. Auk formannsins tilnefnir Þorgerður Katrín tvo af sjö í nefndina, þau Dóru Sif Tynes og Þórólf Matthíasson hagfræðipróssor við HÍ. Bændasamtökum Íslands skipa Sigurgeir Sindra Sigurgeirsson formann BÍ og Arnar Árnason og loks skipa…Lesa meira

true

„Planið er að fara beint upp aftur“

Skallagrímur háði harða fallbaráttu í Domino‘s deild karla síðasta vor, en svo fór að lokum að liðið féll eftir tap í næstsíðasta leik tímabilsins. Leikur Skallagrímur því í 1. deild í vetur. „Planið er að fara beint upp aftur. Ég tel það vera raunhæft markmið og við erum brattir,“ segir Finnur Jónsson, þjálfari karlaliðs Skallagríms,…Lesa meira

true

Stýrivextir lækkaðir um kvartprósentustig

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum sem oftast eru kallaðir stýrivextir, verða því 4,25%. Í yfirlýsingu Peningastefnunefndar frá því á miðvikudagsmorgun segir að horfur séu á minni hagvexti í ár en í fyrra, meðal annars vegna þess að hægt hefur á…Lesa meira

true

Carmen með risaleik í sigri Skallagríms

Skallagrímur byrjaði keppnistímabilið á sigri þegar liðið lagði Njarðvík á útivelli, 66-84, í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Upphafsfjórðungurinn var nokkuð jafn framan af en Skallagrímskonur höfðu þó heldur yfirhöndina og leiddu að honum loknum, 18-26. Þær höfðu áfram stjórnina í öðrum leikhluta og juku forskot sitt. Mest leiddu þær með 14 stigum…Lesa meira

true

Opnuðu Matarlist í Ólafsvík í vor

„Mig hafði dreymt um þetta lengi,“ segir Justyna Ondycz um veitingastaðinn Matarlist sem hún opnaði ásamt Mikolaj Ondycz, eiginmanni sínum, í Ólafsvík í vor. Þau hjónin fluttu með börnin sín til Íslands fyrir áratug og segja landið hafa heillað þau til sín. „Ég var búinn að fara víða um heiminn að vinna sem kokkur, á…Lesa meira

true

Eftirherman og orginalinn næsta laugardag

Þeir Guðni Ágústsson og Jóhannes Kristjánsson munu láta gamminn geysa með skemmtun sína; Eftirherman og orginalinn, í Bíóhöllinni á Akranesi laugardaginn 7. október nk. Vegna villu í auglýsingu sem birtist í Skessuhorni í vikunni er hér með áréttað að þeir Guðni og Jóhannes boða til skemmtikvöldsins í Bíóhöllinni næsta laugardag, þann 7. október klukkan 20…Lesa meira

true

Keflavík sigraði í Hólminum

Fyrsta umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik var leikin í gærkvöldi. Í Stykkishólmi mættust Snæfell og Keflavíl, liðin sem áttust við í úrslitaviðureign Íslandsmótsins síðasta vor. Að lokum fór svo að Íslandsmeistarar Keflavíkur höfðu betur, 63-77. Mikið jafnfræði var með liðunum í fyrsta leikhluta. Þau fylgdust að í öllum sínum aðgerðum og aldrei munaði meira…Lesa meira

true

Sinna fræðslu um jafnfrétti kynjanna

Velferðarráðuneytið og Kvenréttindafélag Íslands hafa gert með sér samning um að félagið sinni fræðslu og upplýsingagjöf um jafnrétti kynjanna á innlendum og erlendum vettvangi í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra og Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður stjórnar Kvenréttindafélagsins undirrituðu samning þessa efnis nýverið. Meginmarkmiðið…Lesa meira

true

Fluglínuæfing Lífsbjargar í Snæfellsbæ

Félagar í björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ notuðu veðurblíðuna um síðustu helgi til að halda æfingu með fluglínu. Var til þess notaður báturinn Sæljós sem dreginn var fyrr á þessu ári upp í fjöruborðið skammt frá Rifshöfn. Hafþór Svansson starfandi formaður Lífsbjargar sagði í samtali við Skessuhorn að það hefði verið kominn tími á að æfa…Lesa meira

true

Félag eldriborgara í Grundarfirði er 25 ára

Sunnudaginn 1. október voru 25 ár liðin frá því að Félag eldri borgara í Grundarfirði var stofnað. Var þessara tímamóta minnst á aðalfundi félagsins sem haldinn var á afmælisdaginn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Aðalhvatamaðurinn og fyrsti formaður félagsins var Guðmundur Runólfsson og með honum í stjórn voru Ólafur Gíslason gjaldkeri og Vigdís Gunnarsdóttir ritari.  Meðstjórnendur voru…Lesa meira