Fréttir

true

Sjálfstæðisflokkurinn býður frá sama lista í NV kjördæmi

Á fundi kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, sem fram fór í dag í Borgarnesi, var  samþykkt að bjóða fram óbreyttan framboðslista og var fyrir ári síðan. Flokkurinn á nú þrjá þingmenn, þau Harald Benediktsson, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og Teit Björn Einarsson. Í fjórða sæti verður Hafdís Gunnarsdóttir Ísafirði og Jónína Erna Arnardóttir í Borgarnesi í…Lesa meira

true

Eva Pandóra mun áfram leiða lista Pírata í NV

Píratar kynntu í gær niðurstöðu prófkjörs um skipan efstu sæta á framboðslistum sínum. Flokkurinn á einn þingmann í Norðvesturkjördæmi, Evu Pandóru Baldursdóttur. Hún bar sigur úr býtum í prófkjöri meðal flokksmanna á landinu og skipar því áfram efsta sæti listans í Norðvesturkjördæmi. Í öðru sæti verður Gunnar Ingiberg Guðmundsson, Rannveig Ernudóttir er í þriðja sæti,…Lesa meira

true

Brynjar Snær til ÍA

Í dag skrifaði Knattspyrnufélag ÍA undir samning við ungan og efnilegan leikmann, Brynjar Snæ Pálsson. Brynjar er fæddur árið 2001 og leikur stöðu miðjumanns og vinstri bakvarðar. Hann hefur allan sinn feril leikið með Skallagrími og á tólf leiki að baki með meistaraflokki félagsins. Fyrsta meistaraflokksleikinn fyrir Skallagrím lék hann í 4. deild karla sumarið…Lesa meira

true

ÍA og Skallagrímur hefja samstarf í yngri flokkum

Í dag var undirritaður samningur milli Knattspyrnufélags ÍA og Knattspyrnudeildar Skallagríms um samstarf yngri flokka félaganna. Samningurinn felur í sér að liðin munu senda sameiginleg keppnislið til keppni í Íslandsmóti og bikarkeppni 4. flokks kvenna, 3. flokks kvenna og 3. flokks karla keppnistímabilið 2017 til 2018.  Lesa meira

true

Snorrahátíðin 1947 í lifandi myndum

Næstkomandi þriðjudag 3. október klukkan 20:30 verður sýnd kvikmynd  um Snorrahátíðina 1947 í hátíðarsal gamla Héraðsskólans í Reykholti. Kvikmyndin var unnin fyrir Snorrastofu og stendur saman af gömlum myndbrotum frá Snorrahátíð 1947 í Reykholti og lýsir einnig för norsku gestanna sem hingað komu fyrir 70 árum. Hátíðarhöldin í framhaldi af Snorrahátíð í Reykholti stóðu í…Lesa meira

true

Sala hefst á bleiku slaufunni – Aukin áhersla á stuðning, fræðslu og ráðgjöf

Líkt og undanfarin tíu ár tileinkar Krabbameinsfélag Íslands októbermánuð baráttu gegn krabbameini hjá konum. Bleiku slaufuna að þessu sinni hannaði Ásta Gunnlaugsdóttir gullsmiður og kostar hún tvö þúsund krónur. Fyrstu slaufurnar verða afhentar við hátíðlega athöfn í dag. Söfnunarfé Bleiku slaufunnar í ár rennur til Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins með það að markmiði að efla stuðning, fræðslu…Lesa meira

true

Sauðamessa verður um aðra helgi í Borgarnesi

Sauðamessa verður haldin í Borgarnesi laugardaginn 7. október. Er þetta fjórtánda árið í röð sem hátíðin fer fram og má búast við fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá. „Við erum að vinna í dagskránni og er margt skemmtilegt á prjónunum í ár en það kemur betur í ljós þegar nær dregur,“ segir Hlédís Sveinsdóttir skipuleggjandi Sauðamessu. „Þriðjudaginn…Lesa meira

true

Gunnar Bragi segir sig úr Framsóknarflokknum

Gunnar Bragi Sveinsson alþingismaður og oddviti Framsóknarflokksins hefur með færslu á Facebook tilkynnt að hann dragi framboð sitt til oddvitasætis í Norðvesturkjördæmi til baka og boðar jafnframt úrsögn sína úr Framsóknarflokknum. „Eftir að hafa ráðfært mig við fjölskyldu og vini hef ég ákveðið að draga framboð mitt til baka. Ég hef jafnframt ákveðið að segja…Lesa meira

true

Vel sótt íbúaþing á Akranesi

Íbúaþing um farsæl efri ár var haldið á Akranesi síðastiðinn miðvikudag. Þingið var haldið á sal Grundaskóla og var afar vel sótt, en þátttakendur voru um 90 talsins. Var það Ingrid Kuhlmann hjá Þekkingamiðlun ehf. sem stýrði viðburðinum. Markmiðið með þinginu var að leita svara við fjórum spurningum: Hvað er gott við að eldast á…Lesa meira

true

Kynntu tillögu um uppbyggingu stofnvega með innheimtu veggjalda

Á samgönguþingi sem fram fór í Hveragerði í vikunni voru kynntar niðurstöður starfshóps um framkvæmdir á stofnvegum út frá höfuðborgarsvæðinu með tilliti til að framkvæmdirnar verði fjármagnaðar með veggjöldum. Um er að ræða þann hluta Reykjanesbrautar sem ekki hefur þegar verið tvöfaldaður, Suðurlandsveg það sem eftir á að tvöfalda austur fyrir Selfoss og Vesturlandsveg að…Lesa meira