Fréttir

true

Á sjötta hundrað óku of hratt

Lögreglan á Vesturlandi hafði afskipti af um 70 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í vikunni sem leið. Sá sem hraðast ók mældist á 143 km/klst. Einnig voru meint hraðabrot mynduð hjá rúmlega 500 ökumönnum með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Nokkrir ökumenn voru staðnir að því að nota símann við aksturinn. Þá er einn ökumaður grunaður um…Lesa meira

true

Fangelsi fyrir akstur án ökuréttinda

Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann í sjö mánaða fangelsi fyrir akstur án ökuréttinda. Maðurinn var stöðvaður þar sem hann ók bifreið sinni um Akranesveg við Smiðjuvelli á Akranesi í maí á þessu ári. Í dómi héraðsdóms kemur fram að maðurinn hafi fyrir dómi skýlaust játað brot sitt. Fram kemur í dómnum að frá árinu 2014…Lesa meira

true

Íbúar á Skógarströnd sendu sveitarstjórn Dalabyggðar áskorun

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar í síðustu viku var lögð fram áskorun frá íbúum Skógarstrandar og eigendum jarða á Skógarströnd vegna sameiningarviðræðna sveitarfélagsins við Húnaþing vestra. Eins og áður hefur komið fram í Skessuhorni munu íbúakosningar um áðurnefnda sameiningu fara fram 28.nóvember til 13.desember n..k. Í áskorun íbúanna er rifjuð upp forsaga þess að Skógarstrandarhreppur sameinaðist…Lesa meira

true

Fjögur sveitarfélög fá tekjujöfnunarframlög

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga ársins 2025. Heildarfjárhæð framlaganna er 1.400 milljónir króna. Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Framlagið er einungis greitt hafi sveitarfélög fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars. Fjögur sveitarfélög á Vesturlandi eru undir tekjuviðmiðum og standast…Lesa meira

true

Pílufélagið í Grundarfirði fær húsnæði

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur ákveðið að leigja pílufélagi Umf. Grundarfjarðar húsnæði i kjallara Grundargötu 30 undir starfsemi félagsins. Félagið sendi bæjarfélaginu erindi fyrir nokkru þar sem óskað var liðsinnis í útvegun húsnæðis. Bæjarráð fól bæjarstjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa að afla upplýsinga og vinna málið frekar. Í framhaldinu kom fram sú tillaga að leigja félaginu áðurnefnt…Lesa meira

true

177 milljónir greiddar í nýliðunarstuðning

Atvinnuvegaráðuneytið hefur úthlutað nýliðunarstuðningi í landbúnaði fyrir árið 2025. Markmiðið með stuðningnum er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Styrkur til einstakra nýliða gat numið allt að 20% af fjárfestingakostnaði, þó að hámarki níu milljónir króna. Heimilt er að veita stuðning til sömu fjárfestingar í allt að þrjú ár…Lesa meira

true

Veiðin oftast verið betri í vestlensku ánum

Veiði í laxveiðiánum á Vesturlandi hefur oft verið betri. Víða var hún mjög slök í öllum samanburði. Nú að afloknu veiði tímabili kíktum við á stöðuna, byrjum í Dölum, þá á Snæfellsnesi og endað í Borgarfirði. Hvolsá og Staðarhólsá gaf 103 laxa, tvo hnúðlaxa, 306 bleikjur, sex urriða og tvær flundrur. „Krossá endaði í 31…Lesa meira

true

Fyrsta tap tímabilsins kom gegn KA

Stelpurnar í blakliði Umf. Grundarfjaraðr tóku á móti liði KA U20 í Íþróttahúsi Grundarfjarðar sunnudaginn 12. október. Lið Grundarfjarðar hefur byrjað tímabilið af krafti og fyrir þennan leik unnið allar sínar hrinur. Fyrsta hrinan fór vel af stað og jafnt var á öllum tölum. Hið unga og kraftmikla lið KA var þó ívið sterkara og…Lesa meira

true

Ekkert samráð ráðherra við Grundarfjarðarbæ vegna skelbóta

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar lýsir yfir verulegum áhyggjum af því að reglugerð um skelbætur hafi ekki verið gefin út og leggur þunga áherslu á að úr því verði bætt án tafar. Þetta kemur fram í samþykkt bæjarstjórnar á fundi hennar í síðustu viku. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns hefur Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra frestað útgáfu…Lesa meira

true

Kosningaloforð meirihlutans í Borgarbyggð fellt í sveitarstjórn

Meirihluti sveitarstjórnar Borgarbyggðar féll í atkvæðagreiðslu á fundi sveitarstjórnar á fimmtudaginn þegar gengið var til atkvæða um framkvæmdir við uppsetningu lýsingar á leið milli hesthúsahverfis og útivistarsvæðisins í Einkunnum. Tillaga meirihlutans um að ráðist yrði í framkvæmdirnar var felld með fjórum atkvæðum minnihluta Sjálfstæðisflokksins, Vinstri Grænna og sameiginlegs lista Samfylkingur og Viðreisnar og einu atkvæði…Lesa meira