
Íbúar á Skógarströnd sendu sveitarstjórn Dalabyggðar áskorun
Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar í síðustu viku var lögð fram áskorun frá íbúum Skógarstrandar og eigendum jarða á Skógarströnd vegna sameiningarviðræðna sveitarfélagsins við Húnaþing vestra. Eins og áður hefur komið fram í Skessuhorni munu íbúakosningar um áðurnefnda sameiningu fara fram 28.nóvember til 13.desember n..k.