Fréttir

true

Örverur rannsakaðar á jarðhitasvæðum

Orkustofnun hefur veitt Matís ohf. almennt rannsóknaleyfi til hagnýtra rannsókna á örverum á tilteknum jarðhitasvæðum á Íslandi. Þetta kemur fram á vefsíðu Orkustofnunar. Á Vesturlandi eru svæðunum skipt niður og eru: Deildartunga C2, Reykholtsdalur C3, Stafholtstungur C4, Snæfellsnes D2 og Reykhólasveit D5.Lesa meira

true

Bændur bjóða heim og markaður á Grímsstöðum á sunnudaginn

Sunnudaginn 18. ágúst opna bændur á Grímsstöðum í Reykholtsdal bú sitt fyrir gestum og gangandi. Þar er rekið Grímsstaðakjet – kjötvinnslubýli. Dagskráin er liður í Beint frá býli deginum sem nú er haldinn annað árið í röð í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Á sunnudaginn munu hvorki meira né minna en 18 heimavinnsluaðilar…Lesa meira

true

Ljúka brátt áfanga á Dynjandisheiði

Framkvæmdir hafa gengið vel við annan áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði og eru verklok áætluð í næsta mánuði. Það er Suðurverk sem er verktaki. Vegurinn liggur frá Norðurdalsá að Dynjandisá, ofan við fossinn glæsilega. Af þeim sökum liggur vegstæðið hátt, eða í um 500 metrum yfir sjávarmáli. Alls er þessi áfangi leiðarinnar 13,7 kílómetrar. Lagt hefur…Lesa meira

true

Makríll einungis suðaustur af landinu

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lauk 2. ágúst síðastliðinn þátttöku í árlegum alþjóðlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum að sumarlagi. Fram kemur í tilkynningu frá Hafró að í þessum 33 daga leiðangri Árna kringum landið hafi verið teknar 65 togstöðvar og sigldar um 6000 sjómílur, eða 11 þúsund km. Þá voru gerðar sjómælingar og teknir átuháfar á öllum yfirborðstogstöðvum.…Lesa meira

true

Sex umsóknir um forstjóra Náttúrufræðistofnunar

Í kjölfar breytinga á stofnunum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins auglýsti ráðuneytið embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar laust til umsóknar í byrjun júlí sl. Sex umsækjendur eru um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Þeir eru í starfrófsröð: Eydís Líndal Finnbogadóttir, settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar, Guðmundur Þórðarson, samningamaður og sérfræðingur, Jón Einar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi, Kristófer S. Arnar P.…Lesa meira

true

Fyrsta steypan vegna nýbyggingar á Kleppjárnsreykjum

Hátíðisdagur er í dag á Kleppjárnsreykjum í ljósi þess að fyrsti dagur í steypu er vegna sökkla nýbyggingar við Grunnskóla Borgarfjarðar. Áætluð verklok eru haustið 2025 en verkefnið er í höndum fyrirtækisins Sjamma ehf frá Akranesi og hefur Efla verkfræðistofa umsjón með framkvæmdum.Lesa meira

true

Litlu munaði í útboði um sorpílát

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta mánudag var lögð fram umsögn um tilboð í sorpílát fyrir bæjarfélagið en um er að ræða útvegun tunna vegna sorptunnubreytinga. Fjögur tilboð bárust og voru þau eftirfarandi: Bender ehf, kr. 29.842.570, Íslenska Gámafélagið ehf, kr. 35.854.200, N1 ehf, kr. 29.325.830 og Terra hf, kr. 32.829.850. Kostnaðaráætlun var 33.725.892…Lesa meira

true

Skagamenn upp í fjórða sætið eftir sigur á Fram

Eftir þrjá sigurleiki gegn KA, KR og Val og jafntefli á móti Breiðablik í júní byrjuðu Skagamenn júlímánuð á 8-0 sigri gegn HK. En í síðustu fjórum leikjum hefur uppskeran verið rýr, tvö töp og tvö jafntefli og aðeins tvö stig í hús. Í gærkvöldi mættu Skagamenn liði Fram sem voru einu stigi ofar en…Lesa meira

true

Ljósufjöll bæra á sér

Frá því á laugardaginn hafa mælst fjórtán jarðskjálftar yfir einn að stærð nærri Grjótárvatni, en það er upp af Mýrum; vestan við Langavatn en sunnan við Hítarvatn. Skjálftahrinan tengist eldfjallakerfi Ljósufjalla sem talið er virkt þrátt fyrir að þar hafi ekki gosið í 1100 ár. Ljósufjallareinin teygir sig frá Kolgrafafirði í vestri að Norðurá í…Lesa meira

true

Bíll brann á þjóðveginum í Melasveit

Klukkan 18:25 í gærkveldi kom upp eldur í flutningabíl sem var á akstri á suðurleið skammt frá Höfn í Melasveit. Bílstjórinn komst út úr bílnum og sakaði ekki. Hringveginum var lokað meðan slökkvi- og hreinsunarstarf stóð yfir og myndaðist löng bílaröð beggja vegna vettvangs, en hreinsun lauk um hálfum öðrum tíma eftir að eldurinn kviknaði.Lesa meira