Bændur bjóða heim og markaður á Grímsstöðum á sunnudaginn

Sunnudaginn 18. ágúst opna bændur á Grímsstöðum í Reykholtsdal bú sitt fyrir gestum og gangandi. Þar er rekið Grímsstaðakjet – kjötvinnslubýli. Dagskráin er liður í Beint frá býli deginum sem nú er haldinn annað árið í röð í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Á sunnudaginn munu hvorki meira né minna en 18 heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur matvæla úr landshlutanum mæta að Grímsstöðum til að kynna og selja vörur sínar.

Bændur bjóða heim og markaður á Grímsstöðum á sunnudaginn - Skessuhorn