Fréttir

true

Allnokkrir ökumenn í símanum við aksturinn

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 27 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Einnig voru allnokkrir ökumenn stöðvaðir vegna símanotkunar við aksturinn eða þeir voru ekki með öryggisbelti spennt. Tveir ökumenn eru grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og einn ökumaður til grunaður um ölvun við akstur. Tvö…Lesa meira

true

Stýrivextir ögn niður

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun um lækkun stýrivaxta um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8,5%. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að verðbólga hafi hjaðnað undanfarið og mældist 5,1% í október. „Hjöðnun verðbólgu er á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hefur einnig minnkað. Þá hafa verðbólguvæntingar almennt lækkað…Lesa meira

true

Kortleggja allt ræktunarland í landinu

Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur samþykkt að ráðist verði í kortlagningu á gæðum ræktunarlands. Markmið kortlagningarinnar er að meta gæði þess út frá bestu fáanlegu gögnum og nýtist þannig við skipulagsgerð og aðra stefnumótun um landnotkun til að tryggja megi m.a. fæðuöryggi í landinu. Verkefnið er í samræmi við landsskipulagsstefnu 2024-2038 sem samþykkt var á Alþingi…Lesa meira

true

Smáframleiðendur héldu markað í Hjálmakletti

Síðastliðinn sunnudag var markaður með mat og handverk haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Töluvert rennerí var af fólki meðan blaðamaður leit við og margt til sölu. Næsti markaður á vegum Matarauðs Vesturlands verður á Breið á Akranesi sunnudaginn 24. nóvember frá klukkan 11 til 17.Lesa meira

true

„Starfsemin breytist í takt við tíðarandann“

Rætt við forstöðumann Bókasafns Akraness í tilefni af 160 ára afmæli þess Bókasafn Akraness varð á dögunum 160 ára og hélt afmælisfagnað af því tilefni. Upphafið má rekja til 6. nóvember 1864 þegar Lestrarfélagið á Akranesi var stofnað og voru félagsmenn þá 37 talsins en upphafsárið var bókaeign safnsins 114 eintök. Núna, 160 árum síðar,…Lesa meira

true

Kjördæmaþáttur frá Norðvesturkjördæmi sýndur beint annað kvöld

Ríkisútvarpið verður með kjördæmaþátt í beinni útsendingu á RÚV 2 á morgun, miðvikudaginn 20. nóvember. Stefnt er að því að þátturinn verði einnig sendur út í beinni útsendingu hér á vef Skessuhorns. Útsending hefst klukkan 18:10 og stendur yfir til kl. 20:00. Þátturinn verður sendur út frá bæjarþingsalnum Dalbraut 4 á Akranesi. Umsjónarmenn verða fréttamennirnir…Lesa meira

true

Frambjóðendur á ferð og flugi

Það er í mörg horn að líta hjá frambjóðendum þeirra tíu flokka sem bjóða fram krafta sína í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum eftir tíu daga. Aðdragandi stjórnarslita var skammur og raunverulegur tími til undirbúnings málefnavinnu og að koma boðskap sínum á framfæri sömuleiðis. Frambjóðendur eru því á ferð og flugi, hitta kjósendur á fundum eða á…Lesa meira

true

Samkeppniseftirlitið vill stöðva alla gjörninga um sameiningu afurðastöðva

Í tilefni af dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær, þess efnis að breyting Alþingis á búvörulögum var dæmd ólögmæt, hefur Samkeppniseftirlitið ritað bréf til allra afurðastöðva og samtaka þeirra þess efnis að horfið verði frá samruna í greininni án aðkomu Samkeppniseftirlitsins. Samkvæmt dómi héraðsdóms samræmdust undanþáguheimildir búvörulaga ekki stjórnskipunarlögum og öðluðust því ekki lagagildi. „Vegna þessa…Lesa meira

true

Gústi sterki og hefnd hafsins bar sigur úr býtum

Frostbiter fór fram á Akranesi um helgina Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter var haldin á Akranesi í níunda skiptið um liðna helgi. Hún hófst á Vesturgötu 48 (gamla Kiwanis salnum), með sýningu á myndinni Clownie & The Satanic Cult. Leikstjóri myndarinnar, Bjarni Gautur, sat svo fyrir svörum eftir sýningu myndarinnar. Um kvöldið var uppistand og hryllings barsvar (pubquiz)…Lesa meira

true

Fjölgreindarleikar á Varmalandi

Í Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi var síðasti fimmtudagur tileinkaður fjölbreytileika og sköpun þegar nemendur tóku þátt í fjölgreindarleikjum Gardners. Kenning Gardners um fjölgreind leggur áherslu á að einstaklingar læri á mismunandi vegu og búi yfir ólíkum styrkleikum, eins og rýmisgreind, tónlistargreind, samskiptagreind og hreyfigreind. Fram kemur á vef skólans að til að fagna þessum fjölbreytileika…Lesa meira