
Það var kalt og stillt veður á fimmtudagskvöldið þegar krakkarnir í Grundarfirði gengu í hús og buðu uppá grikk eða gott. Það voru ákveðin hús sem buðu upp á heimsóknir og voru þau hús með útilukt logandi við útihurðina.Lesa meira

Það var kalt og stillt veður á fimmtudagskvöldið þegar krakkarnir í Grundarfirði gengu í hús og buðu uppá grikk eða gott. Það voru ákveðin hús sem buðu upp á heimsóknir og voru þau hús með útilukt logandi við útihurðina.Lesa meira

Nýjar höfuðstöðvar Náttúrufræðistofnunar verða á Akranesi samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Ráðherra undirritaði í gær viljayfirlýsingu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um að styðja við uppbyggingu starfsstöðva Náttúrufræðistofnunar og fleiri opinberra stofnana ráðuneytisins á Vesturlandi. Í byrjun júlí á þessu ári sameinuðust Náttúrufræðistofnun Íslands, Landmælingar Ísland og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn…Lesa meira

Rætt við Uglu Stefaníu oddvita Pírata í Norðvesturkjördæmi Oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar er Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir. Hún kveðst aðspurð hafa valið að bjóða fram krafta sína þar sem hún er alin upp í kjördæminu og þekki því vel til. Hún er fyrst spurð um bakgrunninn, helstu störf, áhugamál og slíkt. „Ég…Lesa meira

Hraðfrystihús Hellissands stendur best vestlenskra fyrirtækja Alls eru 45 fyrirtæki á Vesturlandi á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki árið 2024, en það er nánast sami fjöldi og á síðasta ári. Nokkur bætast á þennan eftirsótta lista en önnur hafa fallið af honum af ýmsum ástæðum. Alls eru það 1.133 fyrirtæki á öllu landinu sem komast…Lesa meira

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur úrskurðað að fyrirhugaðar framkvæmdir Vegagerðarinnar við Uxahryggjaveg, á milli Brautartungu og Kaldadalsvegar, skulu fara í umhverfismat. Morgunblaðið greindi fyrst frá úrskurðinum sem féll sl. fimmtudag. Nefndin hafnaði kröfu Vegagerðarinnar um að felld verði úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar frá því í sumar, um að verkefnið væri háð mati á umhverfisáhrifum. Til…Lesa meira

Mæðrastyrksnefnd Akraness stefnir á að verða með úthlutun fyrir jólin. Þrátt fyrir auglýsingar fyrr í haust vantar nefndinni enn aðstöðu til að hægt verði að úthluta matvælum. Æskilegt er að keyrsludyr séu á húsnæðinu. Hægt er að hafa samband við Maríu Ólafsdóttur í síma 898-1231 ef húsnæði er í boði.Lesa meira

KLAK – Icelandic Startups stendur um þessar mundir fyrir viðskiptahraðli fyrir sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu og bárust ríflega 30 umsóknir í hraðalinn af öllu landinu. Metfjöldi umsókna var af landsbyggðinni og þar á meðal tvö frá Akranesi sem hlutu brautargengi. Ferðaþjónusta er ein mikilvægasta atvinnugreinin hér á landi og ljóst að áhugi er mikill fyrir því…Lesa meira

Fyrr í dag undirrituðu fulltrúar Carbfix, Elkem á Íslandi og Þróunarfélags Grundartanga undir samstarfssamning um undirbúning að föngun og kolefnisbindingu frá kísilmálmveri Elkem. Viðstaddir undirritunina voru fulltrúar fyrirtækjanna, sveitarfélaga og gestir auk Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra. Meginmarkmið samstarfsins er að fanga koldíoxíð úr útblæstri Elkem og binda til frambúðar með því að nýta aðferð Carbfix…Lesa meira

Undir lok síðustu viku var gengið frá ráðningu sr. Maríu Guðrúnar Ágústsdóttur í starf sóknarprests í Reykholti í Borgarfirði. Þrjár umsóknir bárust um starfið og var það niðurstaða valnefndar að ráða Maríu Guðrúnar Ágústsdóttur, sóknarprest í Fossvogsprestakalli, í starfið og hefur biskup Íslands staðfest ráðninguna. María fagnar ráðningunni og segir á FB síðu sinni um…Lesa meira

„Það var eins og við manninn mælt! Plata á leiðinni og allt ætlar um koll að keyra.“ Þannig hljómar upphaf tilkynningar sem Karlakórinn Heiðbjört var að senda frá sér. Kórinn samanstendur af körlum af sunnanverðu Snæfellsnesi sem koma saman einu sinni í viku yfir vetrarmánuðina og syngja sér til sálubótar. Kórstjórinn er afar hress kona…Lesa meira