Fréttir

true

Hjálmari sagt upp starfi framkvæmdastjóra Blaðamannafélagsins

Hjálmari Jónssyni hefur verið sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands. Fram kemur í tilkynningu á vef félagsins að Hjálmar hafi starfað í rúm tuttugu ár hjá félaginu, sem framkvæmdastjóri frá árinu 2003, en einnig sem formaður á árunum 2010-2021. „Á undanförnum misserum hafa áherslur í starfsemi félagsins breyst og hefur stjórn unnið að endurskipulagningu…Lesa meira

true

Skoða veltufé frá rekstri út frá íbúaþróun

Í næstu viku kemur út nýr Hagvísir SSV sem fjallar um fjármál sveitarfélaga þar sem einblínt er á samhengi íbúaþróunar, fjárfestinga og veltufjár frá rekstri hjá sveitarfélögum á Vesturlandi. Almenn skilgreining á hugtakinu veltufé frá rekstri er það framlag sem rekstur skilar upp í afborganir af lánum og fjárfestingar. Tilefnið voru fréttir snemma árs 2023…Lesa meira

true

Bönkerinn góð viðbót við golfið á Akranesi

Bönkerinn – Innigolf var opnaður skömmu fyrir jól á Smiðjuvöllum 8 á Akranesi. Þar er hægt að iðka innigolf í tveimur splunkunýjum golfhermum og er aðstaðan til fyrirmyndar. Opið hús var í Bönkernum síðasta föstudag og laugardag og var aðsókn með ágætum. Eigendur eru Einar Logi Einarsson og feðgarnir Sigurður Elvar Þórólfsson, Axel Fannar Elvarsson…Lesa meira

true

Vinningshafar í krossgátu og myndagátu í Jólablaði

Nú hafa nöfn tveggja heppinna þátttakenda verið dregin út fyrir réttar innsendar lausnir í krossgátu og myndagátu sem birtist í Jólablaði Skessuhorns 19. desember sl. Að venju var mjög góð þátttaka meðal lesenda og margir sem sendu inn lausnir ýmist í bréf- eða tölvupósti. Lausnin á myndagátunni var þessi: „Hvað ætlar þú að hafa í…Lesa meira

true

Vindskafin ský í Dölum

Berglind Vésteinsdóttir á Sauðafelli í Miðdölum sendi Skessuhorni þessar skemmtilegu myndir sem hún tók síðdegis í gær, 8. janúar. Vindskafin ský sveipuð duluð grúfðu yfir fólki og fjöllum í hálfrökkrinu.Lesa meira

true

Hundrað milljarða jól

Innlend greiðslukortavelta í desember nam 100 milljörðum króna og hækkaði um 0,4% á milli ára, en í desember 2022 nam kortaveltan 99,67 milljörðum. Rannsóknasetur verslunarinnar tekur saman upplýsingar um neyslu landsmanna. Greiðslukortavelta í verslun nam 62,7 milljörðum króna í desember og hækkaði um 4% á milli ára. Erlend kortavelta drógst saman um 9,7% og nam…Lesa meira

true

Golfheimur býður upp á golf og pílu á sama stað

Seinni hlutann í janúar verður fyrirtækið Golfheimur opnað á Smiðjuvöllum 17 á Akranesi. Þar verður aðstaða með tveimur golfhermum af nýjustu gerð og fjórum píluspjöldum. Eigendur Golfheims eru þau Valdís Þóra Jónsdóttir og Karl Ómar Karlsson golfkennarar sem eru með áralanga reynslu í þeim fræðum. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í síðustu viku í aðstöðuna þar sem…Lesa meira

true

Komu saman og stilltu strengi fyrir Góðar fréttir af Snæfellsnesi

Í morgun kom hópurinn saman sem kennir sig við Góðar fréttir af Snæfellsnesi. Fundað var í ráðhúsinu í Grundarfirði. Þetta var vinnufundur og stilltir saman strengir fyrir nýtt ár. „Við erum að taka forskot á sæluna í byrjun árs, en það kemur alltaf eitthvað skemmtilegt fram á þessum fundum okkar,“ segir Hlédís Sveinsdóttir verkefnastjóri í…Lesa meira

true

Styrktaræfing Gunnars Smára verður um næstu helgi

Borgnesingurinn Gunnar Smári Jónbjörnsson er um þessar mundir að takast á við erfitt verkefni og er að jafna sig eftir óvænta og mjög erfiða hjartaaðgerð. Næsta laugardag verður haldin æfing í Ægir Gym á Akranesi og Metabolic Borgarnesi til styrktar Gunnari Smára. Í tilkynningu á FB síðu viðburðarins segir að æfingin verði haldin laugardaginn 13.…Lesa meira