
Þessir ungu piltar voru greinilega ánægðir með lífið í gærmorgun, þegar þeir fengu að spretta úr spori á léttum fjórhjólum á öruggum stað í Ólafsvík. Að sjálfsögðu voru þeir með hjálma á höfði og fyllsta öryggis gætt.Lesa meira

Þessir ungu piltar voru greinilega ánægðir með lífið í gærmorgun, þegar þeir fengu að spretta úr spori á léttum fjórhjólum á öruggum stað í Ólafsvík. Að sjálfsögðu voru þeir með hjálma á höfði og fyllsta öryggis gætt.Lesa meira

Flutningafyrirtækið B. Sturluson ehf. var 24. nóvember síðastliðinn tekið til gjaldþrotaskipta í Héraðsdómi Vesturlands að kröfu sýslumannsins á Vesturlandi. Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður var skipaður skiptastjóri. Sveinn segir í tilkynningu að allri starfsemi félagsins hafi verið hætt 27. nóvember. „Starfsmenn B. Sturluson voru átta talsins, auk framkvæmdastjóra og eiganda félagsins; fimm í Stykkishólmi og þrír…Lesa meira

Borgfirðingurinn Dagbjört Birgisdóttir er nýútskrifaður iðjuþjálfi en hún er nú í óða önn að undirbúa það að hefja þjónustu iðjuþjálfa á svæðinu. Þjónustan Birta iðjuþjálfun er því í undirbúningi og stefnt að opnun á næstu vikum. ,,Þetta hefur lengi verið stefnan hjá mér að stofna slíka þjónustu en Birta iðjuþjálfun er hugsuð til þess að…Lesa meira

Saltskipið Wilson Porto kom til hafnar í Ólafsvík í morgun, þar sem 1500 tonnum af salti verður skipað upp fyrir fiskvinnslur í Grundarfirði, Ólafsvík og Rifi, en skipið hafði áður landað 1.700 tonnum í Stykkishólmi. Góð aflabrögð hafa verið á Snæfellsnesi í öll veiðarfæri þegar gefið hefur á sjó og því ekki seinna að vænna…Lesa meira

Margra kílómetra löng röð flutningabíla hefur verið við landamæri Póllands og Úkraínu undanfarnar vikur vegna aðgerða að undirlagi pólskra bílstjóra. Áætlað er að röðin hafi síðustu daga verið um 50 kílómetra löng og bílarnir í röðinni séu hátt í þrjú þúsund. Á vef Samherja er greint frá því að um fimmtíu flutningabílar hafa verið í…Lesa meira

Í Íslenskum þjóðháttum er sagt svo frá að jólin séu einhver dýrlegasta hátíðin á árinu. Margt sé þá á hreyfingu og einna merkilegastir séu jólasveinarnir. Vísindavefurinn segir elstu ritheimild um orðið jólasvein vera frá síðari hluta 17. aldar, í Grýlukvæði sem eignað er Stefáni Ólafssyni presti í Vallanesi. Þar er reyndar enginn sveinanna nafngreindur. Elsta…Lesa meira

Meistaraflokkur kvenna í blaki hjá Ungmennafélagi Grundarfjarðar eru í 1. sæti í fjórðu deild Blaksambands Íslands. Þær drógust gegn 2. deildar liði Aftureldingar í Kjörísbikar kvenna og voru svo heppnar að fá heimaleik. Sá leikur var spilaður í íþróttahúsi Grundarfjarðar á miðvikudaginn. Bæði lið mættu vel stemmd til leiks en heimakonur þó ívið stemmdari því…Lesa meira

Meirihluti sveitarstjórnar Borgarbyggðar samþykkti fjárhagsáætlun næsta árs sem og þriggja ára áætlun á fundi sínum í gær. Fulltrúar í minnihluta sveitarstjórnar lögðu fram aðra tillögu um fjárhagsáætlun sem meðal annars fól í sér lækkun á fasteignagjöldum en að sama skapi að dregið verði úr fjárfestingum næstu árin. Lagði minnihlutinn fram ítarlega áætlun eins og lesa…Lesa meira

Sú hefð er í heiðri höfð í Menntaskóla Borgarfjarðar að í síðustu vikunni fyrir jólafrí borða nemendur og starfsfólk skólans saman jólamáltíð. Yfirleitt samanstendur hún af hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi og gómsætum eftirrétti sem matráðarnir Sólrún Kára og Rakel Jóhanns framreiða af stakri snilld. Nemendur og starfsfólk mættu í sínu fínasta pússi og nutu matarins…Lesa meira

Stjórn Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis á Akranesi, hefur samið við Trésmiðju Þráins E Gíslasonar um næsta verk við endurbætur á húsakosti heimilisins. Nú verða endurnýjaðar þak- og veggjaklæðningar ásamt því að settir verða í nýir og endurbættir gluggar í 2. áfanga húsanna. Loks verður þakkantur endurnýjaður og löguð flöt þök á 1. áfanga. Verkið var…Lesa meira