
Dagbjört Birgisdóttir iðjuþjálfi. Ljósm. sþ.
Birta iðjuþjálfun opnuð á næstu vikum í Borgarnesi
Borgfirðingurinn Dagbjört Birgisdóttir er nýútskrifaður iðjuþjálfi en hún er nú í óða önn að undirbúa það að hefja þjónustu iðjuþjálfa á svæðinu. Þjónustan Birta iðjuþjálfun er því í undirbúningi og stefnt að opnun á næstu vikum. ,,Þetta hefur lengi verið stefnan hjá mér að stofna slíka þjónustu en Birta iðjuþjálfun er hugsuð til þess að auka aðgengi að þjónustu iðjuþjálfa í Borgarbyggð og veita ýmsan fróðleik með hugsjón iðjuþjálfunar í forgrunni,“ segir Dagbjört í samtali við Skessuhorn.