Biðröð flutningabíla inn í Úkraínu er um fimmtíu kílómetra löng og þar á meðal eru fimmtíu bílar með íslenskar sjávarafurðir. Ljósm. Samherji

Erfiðlega gengur að koma fiskafurðum til kaupenda í Úkraínu

Margra kílómetra löng röð flutningabíla hefur verið við landamæri Póllands og Úkraínu undanfarnar vikur vegna aðgerða að undirlagi pólskra bílstjóra. Áætlað er að röðin hafi síðustu daga verið um 50 kílómetra löng og bílarnir í röðinni séu hátt í þrjú þúsund. Á vef Samherja er greint frá því að um fimmtíu flutningabílar hafa verið í biðröðinni með sjávarafurðir til helsta kaupanda Ice Fresh Seafood í Úkraínu og eru í þeim samtals um eitt þúsund tonn af fiskafurðum. Ice Fresh Seafood selur afurðir Samherja, Síldarvinnslunnar og fleiri sjávarútvegsfyrirtækja.

Erfiðlega gengur að koma fiskafurðum til kaupenda í Úkraínu - Skessuhorn