
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj
Stefna á jákvæðan rekstur en töluverðar framkvæmdir á næstu árum
Meirihluti sveitarstjórnar Borgarbyggðar samþykkti fjárhagsáætlun næsta árs sem og þriggja ára áætlun á fundi sínum í gær. Fulltrúar í minnihluta sveitarstjórnar lögðu fram aðra tillögu um fjárhagsáætlun sem meðal annars fól í sér lækkun á fasteignagjöldum en að sama skapi að dregið verði úr fjárfestingum næstu árin. Lagði minnihlutinn fram ítarlega áætlun eins og lesa má um í bókunum með fundargerð sveitarstjórnar. Framsóknarflokkur sem skipar hreinan meirihluta í sveitarstjórn hafnaði breytingartillögum minnihlutans.