
Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2024 ásamt þriggja ára áætlun 2025-2027 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar á miðvikudaginn. Af lestri hennar kemur skýrt í ljós að sveitarfélagið með sína 756 íbúa er afar vel statt fjárhagslega, sama hvort litið er til rekstrar eða efnahags. Álagningarhlutfall útsvars á næsta ári verður óbreytt, eða 13,91%. Einnig verður álagningarhlutföll…Lesa meira







