
Gleðigjafar, kór eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni, lauk vetrarstarfinu laugardaginn 11. maí með þátttöku í kóramóti í Skálholti. Þar voru saman komnir fjórir kórar eldri borgara af Suðurlandi og voru borgfirsku Gleðigjafarnir gestir þeirra. „Mótið var ánægjulegt í alla staði. Eftir söng hvers kórs tók við samsöngur sem fyllti Skálholtskirkju, sem er dásamlegt tónleikahús.…Lesa meira








