Fréttir

true

Fjölga deildum við leikskólann Teigasel

Á fundi skóla- og frístundaráðs Akraneskaupstaðar síðasta miðvikudag kom fram að um miðjan mars fer fram innritun í leikskóla á Akranesi fyrir starfsárið 2024-2025. Skóla- og frístundaráð hefur ákveðið viðmiðunaraldur yngstu barna við innritun í leikskóla haustið 2024. Foreldrar barna fædd til og með 30. júní 2023 geta sótt um fyrir börn sín og verður…Lesa meira

true

Andlát – Páll Bergþórsson

Páll Bergþórsson, veðurfræðingur og fyrrverandi veðurstofustjóri, er látinn á 101. aldursári. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 10. mars síðastliðinn eftir stutt veikindi. Páll fæddist að Fljótstungu í Hvítársíðu 13. ágúst 1923. Foreldrar Páls voru Kristín Pálsdóttir f. 1885 og Bergþór Jónsson f. 1887, bændur í Fljótstungu. Fyrir áttu þau tvær stúlkur; Guðrúnu sem…Lesa meira

true

Fundaröð um framtíð Breiðafjarðar

Í gær fór fram fyrsti fundur af þremur um framtíðarmöguleika Breiðafjarðar. Tillögur stýrihóps voru kynntar ásamt kynningu á skýrslu sem nefnist „Hagrænt virði Breiðafjarðar,“ eftir Vífil Karlsson hagfræðing. Á síðari hluta fundar fóru fram umræður í hópum en um 50 manns sóttu fundinn. Samkvæmt Sigurborgu Kr. Hannesdóttur, fundarstjóra, er mikilvægt að sækja í þekkingabrunninn sem…Lesa meira

true

Heimsmeistari í flutningi Einars Kárasonar

Næstkomandi laugardag verður frumsýning á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi þar sem Einar Kárason stígur á stokk og segir söguna um Heimsmeistarann, Bobby Fischer. „Heimsmeistari er kynngimögnuð frásögn um glataðan snilling sem er ævifangi síns hrjúfa lundernis,“ segir í kynningu. „Í miðju köldu stríði öttu fulltrúar austurs og vesturs kappi við skákborðið í smáborginni Reykjavík. Heimsmeistaratitill…Lesa meira

true

Keilufélag Akraness með tvo sigurvegara á Íslandsmóti unglinga

Dagana 9.-10. mars sl. var haldið Íslandsmót unglinga í keilu og fór það fram í Keiluhöllinni í Reykjavík. Keilufélag Akraness átti marga fulltrúa sem stóðu sig vel allir sem einn, sérstaklega í ljósi aðstöðuleysis hjá félaginu sem sækir allar æfingar og keppni til Reykjavíkur og ferðaþreyta farin að segja til sín. Í 5. flokki pilta…Lesa meira

true

Sveit Aldursforsetans bar sigur úr býtum

Í gærkvöldi lauk aðalsveitakeppni Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Þátttaka var góð, eða níu sveitir. Strax í upphafi móts setti sveit Aldursforsetans stefnuna á toppinn og var sigur sveitarinnar býsna afgerandi þegar upp var staðið. Aldursforsetinn, hinn síungi 86 ára Sveinn Hallgrímsson, gerði gott mót því hann og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson makker hans urðu efstir í…Lesa meira

true

Ók á 156 km hraða

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 31 ökumanni vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók mældist á 156 km á klst þar sem hámarkshraði er 90 km. Einnig voru meint hraðabrot mynduð hjá 55 ökumönnum með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Fimm ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur sl.…Lesa meira

true

Fjölmenningarskóli Vesturlands hlýtur veglegan styrk

Fimmtudaginn 7. mars sótti Jovana Pavlovic, fjölmenningarfulltrúi Símenntunar Vesturlands, styrk upp á sjö milljónir króna frá Þróunarsjóði innflytjenda. Guðmundur Ingi Guðbrandsson tilkynnti um styrkina, en alls voru 17 verkefni sem fengu styrk upp á samtals 50 milljónir króna. Í yfirlýsingu frá Símenntun Vesturlands kemur fram að markmið Fjölmenningarskóla Vesturlands eru meðal annars að auka lýðræðislega…Lesa meira

true

Badmintonæfingar hafnar á Kleppjárnsreykjum

Í byrjun árs barst Badmintonsambandinu (BSÍ) fyrirspurn frá áhugasömum badmintonspilara í Borgarfirði. Hann hafði áhuga á því að bjóða upp á badmintonæfingar fyrir yngsta stigið í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. BSÍ gaf Ungmennafélagi Reykdæla tösku sem inniheldur startpakka, með badmintonspöðum, kúlum og neti. Nú er byrjuð regluleg badmintonþjálfun í íþróttahúsinu á Kleppjárnsreykjum en tólf krakkar…Lesa meira

true

Tónleikar og aðalfundur Kalman listafélags

„Ég hitti þig“ er yfirskrift tónleika Kristjönu Arngrímsdóttur hjá Kalman listafélagi sem haldnir verða á Vetrardögum föstudaginn 15. mars kl. 20 í Vinaminni á Akranesi. Söngkonan Kristjana Arngrímsdóttir hefur fjölbreyttan tónlistarstíl, allt frá þjóðlögum og vísnalögum uppí sjóðandi heita tangóa og dægurlög. Hún hefur haldið fjölmarga tónleika hér á landi og erlendis og gefið út…Lesa meira