
Á ritstjórn Skessuhorns við Garðabraut 2a er í dag til klukkan 15 tekið fagnandi á móti söngglöðum ungmennum – á öllum aldri. Verið velkomin!Lesa meira

Á ritstjórn Skessuhorns við Garðabraut 2a er í dag til klukkan 15 tekið fagnandi á móti söngglöðum ungmennum – á öllum aldri. Verið velkomin!Lesa meira

Rætt við einn af þúsundum Grindvíkinga sem flýja þurftu bæinn sinn Sjötta eldgosið á þremur árum hófst á Reykjanesi síðastliðinn fimmtudagsmorgun, en fyrsta gosið á eldgosasvæðinu varð í Fagradalsfjalli 24. mars 2021. Síðustu þrjú gosin hafa orðið með innan við mánaðar millibili og óþægilega nærri byggðinni í Grindavík. Þau hófust í kjölfar kröftugra jarðskjálfta og…Lesa meira

Mikill metnaður var í Borgnesingum í morgunsárið en víða var að sjá ýmsar ofurhetjur á sveimi. Má það vera að þessi metnaðarfullu börn, unglingar og jafnvel fullorðnir einnig mæti í fyrirtæki í dag og taki lagið. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Uglukletti í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarness og á heilsugæslustöðinni í Borgarnesi í morgun.Lesa meira

Í frétt í Skessuhorni sem kom út í dag og sömuleiðis í frétt hér á vefnum í byrjun vikunnar var sagt frá því að á Borgarnesblótinu sl. laugardag var tikynnt um hver væri útnefndur Borgnesingur ársins 2023, en það var í sjötta skipti sem verðlaun þessi eru afhent, en ekki í fjórða skipti eins og…Lesa meira

Nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fengu frí frá hefðbundinni stundaskrá í þessari viku þegar árlegir opnir dagar eru í skólanum. Þá gefst nemendum kostur á að taka þátt í mörgum ólíkum viðburðum, námskeiðum og alls konar afþreyingu. Þar má nefna fyrirlestra, golfhermi, pílu, bollakökuskreytingar, uppistandsnámskeið, smíði fuglahúss, flugukastsnámskeið, bíó, félagsvist og margt fleira. Opnum…Lesa meira

Húsfyllir var á fundi sem Umhverfisstofnun (UST) hélt í félagsheimilinu Lyngbrekku á Mýrum í gær, mánudag. Til fundarins voru boðaðir landeigendur innan tillögusvæða á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár, allt frá Langárósi og vestur á Snæfellsnes. Miklar og heitar umræður urðu á fundinum og landeigendur telja enn margra svara vant. Fyrri fundur var 18. janúar Í fundarboði UST…Lesa meira

Sá kafli Borgarbrautar í Borgarnesi, frá gatnamótum Böðvarsgötu og að gatnamótum Skallagrímsgötu, minnir á löngu liðna tíma í þéttbýli. Þar eru holur nú í bland við klakabunka. Eftir framkvæmdir á síðasta ári náðist ekki að setja bundið slitlag á götuna og er hún því malarvegur líkt og fólk til sveita býr við alla daga ársins.…Lesa meira

Gullmót KR í sundi var haldið um síðustu helgi í Laugardalslaug og tóku 19 sundmenn frá Sundfélagi Akraness þátt í mótinu. Að sögn Kjell Wormdal, yfirþjálfara SA, var sundfélagið með krakka frá níu ára aldri á mótinu um helgina en þetta er eitt af gistimótum ársins og stemningin meðal krakkanna var mjög góð alla helgina.…Lesa meira

Víða um land var 112 dagurinn haldinn hátíðlegur á sunnudaginn. Áhersla þetta árið var lögð á öryggi við sjó og vötn „Það er búið að vera ofarlega í okkar huga upp á síðkastið,“ segir Vigdís Ósk Viggósdóttir, formaður Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi í samtali við Skessuhorn. „Í fjörunum við Borgarnes er oft ís á þessum…Lesa meira

Skíðaþyrstir Snæfellingar fengu heldur betur frábærar aðstæður um liðna helgi í heimabyggð. Veðrið lék við gesti á svæðinu en boðið var upp á fullorðins opnun þar sem óreyndir skíðaiðkendur á besta aldri gátu fengið leiðsögn á bretti, skíði og hvernig á að taka lyftuna í rólegheitunum. Þetta tókst vel og margir sem renndu sér í…Lesa meira