Fréttir

true

Næringarríkari jarðvegur skilar næringarríkari afurð

Rætt við Þórunni Ólafsdóttur og Harald Guðjónsson áhugafólk um lífræna jarðrækt og eigendur Dalahvítlauks Hjónin Þórunn Ólafsdóttir og Haraldur Guðjónsson eiga landskika í Neðri-Brekku í Saurbæ hvar þau hafa komið sér fyrir sælureit. Landið, sem er einn hektari að stærð, keyptu þau árið 1997 af Eysteini bónda í Bersatungu. Fljótlega eftir jarðarkaupin hófu þau að…Lesa meira

true

Alfreð Hjaltalín kominn heim í Ólafsvík

Knattspyrnumaðurinn Alfreð Már Hjaltalín hefur samþykkt að fá félagaskipti heim í Víking Ólafsvík og vera liðinu innan handar í sumar. Þetta kemur fram á FB síðu félagsins. Alfreð mun ekki geta helgað sig boltanum að fullu í sumar en ljóst að reynsla hans og gæði munu nýtast liðinu í sumar. Alfreð er fæddur árið 1994…Lesa meira

true

Reglugerð um strandveiðar en óvissa um nýtt frumvarp

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um strandveiðar. Alls verða tíu þúsund tonn af þorski í strandveiðipottinum á þessu veiðitímabili. Hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks nemur því nú tæpum fimm prósentum sem er svipað og veiðitímabilið 2022 en þá var í fyrsta sinn svo stórum hluta leyfilegs heildarafla úthlutað til strandveiða. Í kjölfar…Lesa meira

true

Halda samstöðufund fyrir strandveiðarnar

Næstkomandi föstudag klukkan 17 hefur verið boðað til óformlegs samstöðufundar á fiskmarkaðinum við Akraneshöfn með þeim sjómönnum sem hyggjast stunda strandveiðar frá Akranesi í sumar. „Á fundinn er boðið smábátasjómönnum en einnig fulltrúum Fiskistofu, Faxaflóahafna, MAST, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Hafró. Þetta verður óformlegur fundur þar sem m.a. verður farið yfir verklagsreglur um meðhöndlun afla og…Lesa meira

true

Þungt hljóð í félagsmönnum Fornbílafjelags

Aðalfundur Fornbílafjelags Borgarfjarðar var haldinn í gærkvöldi í húsi Gamla mjólkursamlagsins við Skúlagötu í Borgarnesi. Auk venjubundinna aðalfundarstarfa var einkum rætt um slæma stöðu félagsins í húsnæðismálum. Eins og kunnugt er lét Borgarbyggð loka húsnæði félagsins í Brákarey í byrjun árs 2021 vegna athugasemda sem gerðar höfðu verið um ófullnægjandi eldvarnir. Síðan hefur Borgarbyggð, sem…Lesa meira

true

Veiðibjallan farin að verpa í flóanum

Svartbakurinn, oft nefndur veiðibjalla en einnig bjalla, kaflabringur, kaflabrinki eða skári, er byrjaður að verpa í Garðaflóanum ofan við Akranes. Engu skiptir þó hitastigið sé niður undir frostmarki, bjallan lítur bara á dagatalið og verpir þegar sumardagurinn fyrsti er upp runninn. Á myndinni er Böðvar Ingvason sjómaður á Skaganum að ná sér í egg, en…Lesa meira

true

Sauðfjárbændur hvetja til stóraukins viðhalds girðinga

Sauðfjárbændur í Borgarfjarðarhéraði eru að vonum uggandi yfir tíðindum af riðusmiti í Miðfjarðarhólfi. Á fundi sínum í gær var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Félag sauðfjárbænda i Borgarfjarðarhéraði sendir nágrönnum sínum í Miðfjarðarhólfi hlýjar kveðjur með von um að ekki greinist fleira fé með þennan hræðilega sjúkdóm sem riðuveiki er. Jafnframt skorar félagið á Matvælaráðuneytið, MAST og…Lesa meira

true

Búið að steypa brúna yfir Dunká á Skógarstrandarvegi

Fimmtudaginn 20. apríl var steypt ný brú yfir Dunká á Skógarströnd. Það var Húsheild ehf. og byggingarfélagið Hyrna sem sá um verkið sem tók 17 klukkustundir. Um klukkan 5:30 að morgni fimmtudags mættu fyrstu steypubílarnir á staðinn en að verkinu komu 15 bílar sem fóru samtals tæplega 70 ferðir frá Borgarnesi með steypu. 25 starfsmenn…Lesa meira

true

Vinnustofa um nýsköpun í dreifðum byggðum

Tunglskotin heim í hérað er yfirskrift vinnustofu um nýsköpun sem haldin verður í Dölum eftir um mánuð. Á henni verður reynt að svara spurningunni: Hvaða tækifæri gæti það skapað ef hægt væri að örva nýsköpun í dreifðum byggðum? „Það er hægt, spurningin er ekki hvort, heldur hvernig.“ Öllum þeim sem láta sig nýsköpun á íslenskri…Lesa meira

true

Gefn og Jáverk hlutu kuðunginn

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, veitti í gær fyrirtækjunum Jáverki og Gefn Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu ráðuneytisins fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Sjálandsskóla útnefndir Varðliðar umhverfisins. Í rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu á Jáverki, sem handhafa Kuðungsins 2022, kemur fram að fyrirtækið hafi verið fyrsta umhverfisvottaða byggingafyrirtækið…Lesa meira