Vinnustofa um nýsköpun í dreifðum byggðum

Tunglskotin heim í hérað er yfirskrift vinnustofu um nýsköpun sem haldin verður í Dölum eftir um mánuð. Á henni verður reynt að svara spurningunni: Hvaða tækifæri gæti það skapað ef hægt væri að örva nýsköpun í dreifðum byggðum? „Það er hægt, spurningin er ekki hvort, heldur hvernig.“ Öllum þeim sem láta sig nýsköpun á íslenskri landsbyggð varða og eru tilbúnir að ljá þeim krafta sína í tvo daga, er boðið að taka þátt í tveggja daga vinnustofu, dagana 23. – 24. maí næstkomandi, að Laugum í Sælingsdal.

Vinnustofa um nýsköpun í dreifðum byggðum - Skessuhorn