Fréttir

true

Nýr framkvæmdastjóri SÍS

Arnar Þór Sævarsson er nýr framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, hann tekur við starfinu af Karli Björnssyni sem lætur af störfum 1. maí n.k. Arnar hefur starfað sem aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra frá árinu 2021 og var aðstoðarmaður félags- og barnamálaráðherra á árunum 2018-2021. Segir í tilkynningu frá SÍS að sem aðstoðarmaður hafi Arnar komið að…Lesa meira

true

ÍA og Kári fengu Keflavík og Þór í Mjólkurbikarnum

Í hádeginu í dag var dregið í 32-liða úrslit í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Tvö Vesturlandslið voru í pottinum og voru ágætlega heppin með mótherja. Skagamenn fengu útileik á móti Bestu deildar liði Keflavíkur og verður sá leikur miðvikudaginn 19. apríl í Nettóhöllinni í Reykjanesbæ og…Lesa meira

true

Emkan ehf. með lægsta boð í gatnaframkvæmdir á Akranesi

Emkan ehf. var með lægsta boð í þær gatnaframkvæmdir sem Akraneskaupstaður auglýsti fyrr í vor fyrir árið 2023. Um er að ræða viðhald gatna og endurnýjun gangstétta á Leynisbraut, á Garðagrund frá Þormóðsflöt að Bresatorgi og á Bresaflöt frá Bresatorgi að Eyrarflöt. Áætlaður kostnaður við verkið er 144 milljónir króna og bárust fimm tilboð í…Lesa meira

true

Prófuðu nýja safnlaug

Slökkviliðið á Reykhólum fékk nýlega ílát til að safna vatni. Þetta er laug eða sekkur úr sterkum nælondúk sem tekur 15 þúsund lítra. Samanbrotin kemst hún í skottið á flestum bílum. Svona laug er hentug þar sem langt er í vatn frá brunastað. Hægt er að ferja í hana vatn með tankbíl og dæla úr…Lesa meira

true

Langi Seli og Skuggarnir í Landnámssetrinu

Langi Seli & Skuggarnir verða með tónleika á Sögulofti Landnámsseturs í Borgarnesi fimmtudaginn 13. apríl kl. 20:30. „Þetta er rokkabillí veisla eins og þær gerast bestar! Hljómsveitin á sér 35 ára sögu en tók nú síðast þátt í Eurovision með laginu OK og lenti í öðru sæti. Þess má geta að Langi Seli (Axel) er…Lesa meira

true

Kjartan Þór ráðinn leiðtogi Hringrásarsamfélagsins í Reykhólahreppi

Kjartan Þór Ragnarsson hefur verið ráðinn í starf leiðtoga Hringrásarsamfélagsins í Reykhólahreppi en það er verkefni sem áður hét Grænir iðngarðar á Reykhólum. Markmið verkefnisins er að skapa ramma um auðlindamál Reykhólahrepps, að koma á samkomulagi á milli sveitarfélagsins, Þörungaverksmiðjunnar, Orkubús Vestfjarða og ríkisins um auðlindanýtingu í sveitarfélaginu og að skipuleggja hringrásarsamfélag og græna iðngarða…Lesa meira

true

Kári og ÍA komnir í 32-liða úrslit í Mjólkurbikarnum

Fjórðu deildar lið Árborgar og Kári sem leikur í þriðju deild í sumar áttust við á skírdag í 2. umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu og var leikurinn á Selfossi. Borgnesingurinn Hilmar Elís Hilmarsson kom Kára strax yfir á 3. mínútu og Sigurjón Logi Bergþórsson bætti við öðru marki fyrir Kára eftir tuttugu mínútna leik. Hilmar…Lesa meira

true

60 ára afmæli Þorrakórsins

Þorrakórinn í Dölum heldur 60 ára afmælistónleika í félagsheimilinu að Staðarfelli nú á laugardaginn 15. apríl. Þorrakórinn kom fyrst fram á þorrablóti á Staðarfelli árið 1963 undir stjórn Halldórs Þórðarsonar, bónda á Breiðabólsstað á Fellsströnd. Uppistaðan í kórnum á þeim tíma var fólkið í sveitinni, Fellsströnd og Klofningshreppi, sem flest var líka í kirkjukórnum. Kórinn…Lesa meira

true

Vilja bæta innkomuna í sveitarfélagið

Á síðasta fundi atvinnu,- markaðs- og menningarnefndar Borgarbyggðar var m.a. rætt um ímynd Borgarbyggðar á mörkum sveitarfélagsins. „Nefndin hefur hug á því að bæta ásýnd á mörkum sveitarfélagsins og leggur til að farið verði í hugmyndasamkeppni um hönnun og útlit á innkomu Borgarbyggðar,“ sagði í fundargerð. Verkefnið verður nánar kynnt síðar.Lesa meira

true

Vilja nýta Kirkjuhvol til listgreinakennslu

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 30. mars síðastliðinn var tekið fyrir erindi frá skólastjórnendum Brekkubæjarskóla. Óska þeir eftir því að að fá að nýta Kirkjuhvol, sem er á nærliggjandi lóð við skólann, fyrir listgreinakennslu skólaárið 2023-2024. Bæjarráð fól sviðsstjórum skóla- og frístundasviðs og fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins og að kanna möguleika þess að nýting…Lesa meira