
60 ára afmæli Þorrakórsins
Þorrakórinn í Dölum heldur 60 ára afmælistónleika í félagsheimilinu að Staðarfelli nú á laugardaginn 15. apríl. Þorrakórinn kom fyrst fram á þorrablóti á Staðarfelli árið 1963 undir stjórn Halldórs Þórðarsonar, bónda á Breiðabólsstað á Fellsströnd. Uppistaðan í kórnum á þeim tíma var fólkið í sveitinni, Fellsströnd og Klofningshreppi, sem flest var líka í kirkjukórnum. Kórinn hefur frá 1963 sungið á hverju einasta þorrablóti á Staðarfelli en þess á milli verið misjafnlega virkur. Í dag eru meðlimir kórsins á þriðja tug og athygli vekur að ennþá sér Halldór Þórðarson um kórstjórnina. Hann er jafnframt sá eini sem er í kórnum í dag og söng með kórnum á fyrsta þorrablótinu.
Fjölbreyttri söngdagskrá er lofað næstkomandi laugardag. Aðgangseyrir er 2.000 krónur en frítt fyrir 16 ára og yngri. Enginn posi er á staðnum.