Fréttir

true

Akraneskaupstaður tryggir fjármögnun verkefna

Íslandsbanki og Akraneskaupstaður hafa undirritað lánasamning vegna brúarfjármögnunar fyrir allt að þremur milljörðum króna og er samningurinn til tveggja ára. Átti Íslandsbanki hagstæðasta tilboðið. Í frétt á heimasíðu kaupstaðarins segir að miklar fjárfestingar og framkvæmdir séu framundan næstu árin hjá Akraneskaupstað sem kalla á frekari lántöku en áætlað er að setja um 2,6 milljarða kr.…Lesa meira

true

Háskóladagurinn er framundan

Háskóladagurinn 2023 verður haldinn laugardaginn 4. mars næstkomandi milli klukkan 12 og 15. Allir háskólar landsins munu þá kynna starfsemi sína. Dagurinn fer fram í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Háskóla Íslands og Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýrinni. Minnt er á vefinn www.haskoladagurinn.is – þar er öflug leitarvél þar sem nemendur geta fundið draumanámið og…Lesa meira

true

Ný sýning hefur verið opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar

Hvað ungur nemur gamall temur er yfirskrift sýningar sem opnuð var í Safnahúsi Borgarfjarðar síðastliðinn föstudag. Um er að ræða samstarf Safnahússins og Grunnskólans í Borgarnesi en sýningarstjóri er Anna Sigríður Guðbrandsdóttir myndmenntakennari við skólann. Hún segir sýninguna tilraun til að mynda brú á milli tveggja hópa skapandi fólks, þ.e. myndlistarfólks og ungmenna. Til sýnis…Lesa meira

true

Pósthúsinu í Ólafsvík verður lokað

Í byrjun júní næstkomandi mun Íslandspóstur gera breytingar á póstþjónustu víðs vegar á landinu og loka m.a. tveimur pósthúsum og nokkrum smærri afgreiðslustöðvum á landsbyggðinni. Meðal annars stendur til að loka pósthúsinu í Ólafsvík, en leggja þess í stað meiri áherslu á annars konar þjónustu, eins og segir í tilkynningu. Starfsfólki hafa verið kynntar þessar…Lesa meira

true

Anna Lísa og Linda Kristey komust áfram í Samvest

Hæfileikakeppni Arnardals og grunnskólanna á Akranesi var haldin miðvikudaginn 22. febrúar síðastliðinn og fór að þessu sinni fram í Bíóhöllinni á Akranesi. Góð stemning var í fullum salnum og einnig baksviðs. Öll atriðin voru vel undirbúin og stóðu flytjendur kvöldsins sig vel. Keppnin var með breyttu sniði í ár og var sú ákvörðun tekin að…Lesa meira

true

Skessuhorn.is nú orðinn áskriftarvefur

Aðfararnótt mánudags tók vefur Skessuhorns breytingum. Hann er nú áskriftarvefur. Þar með eru áskriftarleiðir Skessuhorns orðnar þrjár; þ.e. blaðaáskrift, rafræn blaðaáskrift (PDF) og vefáskrift. Vefáskrift er því nýjasti valmöguleikinn og kostar 1.998 krónur á mánuði. Allir geta samt farið inn á vefinn og skoðað sig þar um, lesið fyrirsagnir og styttri fréttir. Áfram verða þær…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Eva Björg Ægisdóttir

„Ég var bara með þá hugmynd að skrifa bók“ Viðmælandi vikunnar í hlaðvarpsþættinum Skinkuhorni er metsöluhöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir. Í lok síðasta árs kom út fimmta skáldsaga hennar en hún hefur getið sér gott orð sem glæpasagnahöfundur. Bækur hennar hafa komið út í fimmtán löndum, nú síðast í Eþíópíu og þar með hafa komið út…Lesa meira

true

Íslensku lýðheilsuverðlaunin verða veitt í fyrsta sinn í vor

Forseti Íslands hefur tilkynnt um ný verðlaun, Íslensku lýðheilsuverðlaunin, sem efnt er til í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis, Geðhjálp og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Ráðgert er að veita lýðheilsuverðlaunin í fyrsta sinn í vor og er óskað tillagna frá almenningi um hver ættu að hljóta þessa viðurkenningu fyrir framlag til eflingar lýðheilsu á Íslandi.…Lesa meira

true

Starfsmenn Akrasels þurfa daglega að tína upp níkótín púða

Starfsmenn á leikskólanum Akraseli á Akranesi keppast við að tína upp nikótín púða af skólalóðinni áður en börnin fara út að leika. Ábending þessa efnis hefur verið send út á foreldra og þeir hvattir til að passa upp á nikótín púðana, noti þeir slíka. Einnig fannst ónotaður níkótín púði inni í leikskólanum í gærmorgun en…Lesa meira

true

Braust inn í bústað en greiddi fyrir tjónið

Síðastliðinn föstudag var hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt um innbrot í sumarbústað í Fitjahlíð í Skorradal. Búið var að spenna upp glugga og var hurðin á bústaðnum ólæst. Eigendur bústaðarins höfðu ekki komið í húsið frá því í lok janúar þegar þeir komu þarna í síðustu viku og virtist engu hafa verið stolið. Eigendurnir fundu…Lesa meira