
Skessuhorn.is nú orðinn áskriftarvefur
Aðfararnótt mánudags tók vefur Skessuhorns breytingum. Hann er nú áskriftarvefur. Þar með eru áskriftarleiðir Skessuhorns orðnar þrjár; þ.e. blaðaáskrift, rafræn blaðaáskrift (PDF) og vefáskrift. Vefáskrift er því nýjasti valmöguleikinn og kostar 1.998 krónur á mánuði. Allir geta samt farið inn á vefinn og skoðað sig þar um, lesið fyrirsagnir og styttri fréttir. Áfram verða þær fréttir hafðar opnar sem höfða til öryggis og almannahagsmuna. Lengri fréttir og viðtöl í heild sinni, annað efni í hljóði og mynd verður einungis opið vefáskrifendum. Með vefáskrift gefst starfsfólki Skessuhorns möguleiki á að miðla efni örar til áskrifenda sinna. Áskrifendum blaðs býðst að kaupa vefáskrift á hálfvirði, eða fyrir 999 krónur á mánuði. Núverandi blaðaáskrifendur, sem vilja bæta vefáskrift við áskrift sína, skal bent á að endurnýja áskriftina í gegnum nýtt áskriftarform hér á vefnum (velja þarf blaðaáskrift og vefáskrift og klára kaupin í gegnum vefinn og fellur þá fyrri áskrift úr gildi).
Fréttablað Skessuhorns er prentað í viku hverri og fer í dreifingu á miðvikudögum. Áskrift að blaði Skessuhorns kostar 4.357 kr. á mánuði og er borið út. Fyrir þá sem kjósa er einnig boðið upp á rafræna blaðáskrift og hægt að lesa það í PDF formi. Mánaðaráskrift að rafrænu blaði kostar 3.413 kr.
Skessuhorn býður nýja áskrifendur velkomna, þú getur skráð þig í áskrift hér. Við höfum þann vara á að á næstu dögum gætu komið upp hnökrar í nýja áskriftarforminu. Þeir sem verða varir við slíka hnökra eru beðnir um að senda póst á skessuhorn@skessuhorn.is eða hringja á skrifstofutíma í s. 433-5500.
Með því að gerast áskrifandi hjálpar þú Skessuhorni að halda áfram að starfa í þágu Vestlendinga og gerir útgáfunni kleift að segja fréttir og sögur sem skipta máli, af ykkar fólki og fyrir ykkur.
Velkomin/n í hópinn!