
Nikótínpúðar eru eitur fyrir börn sem stinga þeim upp í sig.
Starfsmenn Akrasels þurfa daglega að tína upp níkótín púða
Starfsmenn á leikskólanum Akraseli á Akranesi keppast við að tína upp nikótín púða af skólalóðinni áður en börnin fara út að leika. Ábending þessa efnis hefur verið send út á foreldra og þeir hvattir til að passa upp á nikótín púðana, noti þeir slíka. Einnig fannst ónotaður níkótín púði inni í leikskólanum í gærmorgun en þar fann starfsmaður púðann.