Fréttir

true

Skinkuhorn – Eva Björg Ægisdóttir

„Ég var bara með þá hugmynd að skrifa bók“ Viðmælandi vikunnar í hlaðvarpsþættinum Skinkuhorni er metsöluhöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir. Í lok síðasta árs kom út fimmta skáldsaga hennar en hún hefur getið sér gott orð sem glæpasagnahöfundur. Bækur hennar hafa komið út í fimmtán löndum, nú síðast í Eþíópíu og þar með hafa komið út…Lesa meira

true

Íslensku lýðheilsuverðlaunin verða veitt í fyrsta sinn í vor

Forseti Íslands hefur tilkynnt um ný verðlaun, Íslensku lýðheilsuverðlaunin, sem efnt er til í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis, Geðhjálp og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Ráðgert er að veita lýðheilsuverðlaunin í fyrsta sinn í vor og er óskað tillagna frá almenningi um hver ættu að hljóta þessa viðurkenningu fyrir framlag til eflingar lýðheilsu á Íslandi.…Lesa meira

true

Starfsmenn Akrasels þurfa daglega að tína upp níkótín púða

Starfsmenn á leikskólanum Akraseli á Akranesi keppast við að tína upp nikótín púða af skólalóðinni áður en börnin fara út að leika. Ábending þessa efnis hefur verið send út á foreldra og þeir hvattir til að passa upp á nikótín púðana, noti þeir slíka. Einnig fannst ónotaður níkótín púði inni í leikskólanum í gærmorgun en…Lesa meira

true

Braust inn í bústað en greiddi fyrir tjónið

Síðastliðinn föstudag var hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt um innbrot í sumarbústað í Fitjahlíð í Skorradal. Búið var að spenna upp glugga og var hurðin á bústaðnum ólæst. Eigendur bústaðarins höfðu ekki komið í húsið frá því í lok janúar þegar þeir komu þarna í síðustu viku og virtist engu hafa verið stolið. Eigendurnir fundu…Lesa meira

true

Háskólar í samstarf vegna vísinda og tækni

Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykjavík ætla í samstarf til að reyna að fjölga brautskráningum í vísinda-, tækni-, verkfræði- og stærðfræðigreinum. Það hyggjast þeir gera með því að útbúa betra kynningarefni um námið, breyta kennsluháttum og koma á netnámskeiðum í eðlisfræði, efnafræði, forritun, stærðfræði og tölfræði. En með því er vonast til…Lesa meira

true

Æsileg eftirför lögreglu

Seinni part þriðjudags í liðinni viku fékk lögregla tilkynningu frá fjarskiptamiðstöð um ofsaakstur bifreiðar í Hvalfjarðargöngum. Lögreglan fór að þeim norðan megin. Sáu þeir bifreiðina koma upp úr göngunum og veittu henni eftirför áleiðis á Akranes. Gáfu þeir merki með forgangsljósum að stöðva aksturinn en ökumaðurinn skeytti engu um það og jók bara ferðina. Lögreglan…Lesa meira

true

Lengjubikarinn kominn á fullt

Vesturlandsliðin léku um síðustu helgi í Lengjubikar karla í knattspyrnu og voru úrslitin frekar misjöfn hjá liðunum. ÍA fór í Kórinn í riðli 1 í A deild og þar var aðeins eitt mark skorað á lokamínútu leiksins. Þar var að verki Oliver Haurits leikmaður HK og lokatölur því 1-0 fyrir HK. ÍA er með þrjú…Lesa meira

true

Frábær ferð skíðanemenda í FSN

Nemendur í íþróttaáfanganum ÍÞRÓSK02 í Fjölbrautaskóla Snæfellinga skelltu sér í Hlíðarfjall á Akureyri dagana 20. – 22. febrúar síðastliðinn. Einhverjir nemendur voru að stíga sín fyrstu skrif á skíðum eða bretti en aðrir voru að bæta við kunnáttu sína í skíða- og brettafræðum. Farið var með rútu frá skólanum á mánudagsmorgni og farið beint upp…Lesa meira

true

Höfuðborin stækkunartæki gjörbreyta möguleikum sjónskertra

Ný tegund sjónhjálpartækja gjörbreytir möguleikum og aðstæðum sjónskertra hér á landi. Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu hefur tekið í notkun höfuðborin stækkunartæki sem gerir mörgum lögblindum einstaklingum kleift að sjá hluti og viðburði sem þeir fóru á mis við áður. Um tvær tegundir höfuðborinna stækkunartækja er að…Lesa meira

true

Boðið verður upp á meistaranám í afbrotafræði við HÍ í haust

Frá og með næsta hausti mun Háskóli Íslands bjóða upp á meistaranám í afbrotafræði á vegum námbrautar í félagsfræði. Námið verður í samstarfi við fjölmargar stofnanir innan íslenska réttarkerfisins. Stór og reynslumikill kennarahópur innan og utan háskólans kemur að náminu sem getur fleytt fólki í störf við ólíkar stofnanir sem fást við glæpi og refsingu…Lesa meira