Fréttir

true

Stórbruni á Tálknafirði

Á tíunda tímanum í morgun var allt tiltækt slökkvilið á Patreksfirði og Tálknafirði kallað út. Mikill eldur er í 5000 fm. nýbyggingu Arctic Fish í Norður-Botni, innst í Tálknafirði. Eldurinn kom upp í húsi sem er í byggingu sem átti að hýsa þriðju seiðaeldisstöð fyrirtækisins. Húsið stendur milli tveggja annarra húsa og beinist krafturinn í…Lesa meira

true

Hugmyndum varpað fram um ný heildarsamtök í landbúnaði

Við upphaf Búgreinaþings, sem nú fer fram á Hótel Natura í Reykjavík, voru kynntar hugmyndir um ný heildarsamtök í landbúnaði sem yrðu byggð sameiginlega á Bændasamtökum Íslands og Samtökum fyrirtækja í landbúnaði. Fréttavefurinn bbl.is greinir frá því að það hafi verið Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi alþingismaður og landbúnaðarráðherra, sem hafi farið yfir niðurstöður vinnu hans…Lesa meira

true

Jón Theodór hlaut viðurkenningu frá KSÍ

Hvanneyringurinn Jón Theodór Jónsson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeldar Skallagríms í Borgarnesi, hlaut í gær viðurkenningu frá Knattspyrnusambandi Íslands sem Grasrótarpersóna ársins. Í frétt KSÍ segir að Jón Theodór hafi hlotið titilinn fyrir ómetanlegst starf sem hann hefur unnið hjá Skallagrími. Í tilnefningunni segir: ,,Jón Theodór sýnir mikla ástríðu fyrir þjálfun yngri flokka og hefur rifið upp knattspyrnustarfið…Lesa meira

true

Atvinnurekendur samþykktu verkbann nær samhljóða

Aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins samþykktu í gær með afgerandi meirihluta atkvæða að sett verði verkbann á félagsmenn Eflingar. Mun það ná til starfa um 20 þúsund starfsmanna Eflingar. Það þýðir að þeir verði sendir heim og fá ekki greidd laun komi til þess að ósamið verður á hádegi á fimmtudag eftir viku. Kjörsókn í atkvæðagreiðslu fyrirtækjanna…Lesa meira

true

Skapandi fólk á Vesturlandi kallað til fundar í mars

Erna Kaaber rannsakar áhrif skapandi greina á nýsköpun á Vesturlandi Laugardaginn 11. mars næstkomandi verður haldinn borgarfundur um áhrif menningar og skapandi greina á nýsköpun á Vesturlandi. Vesturland er eitt af sex tilraunsvæðum Evrópurannsóknarinnar IN SITU sem hvetur til samtals um áskoranir og tækifæri í atvinnugreininni. ,,Við hvetjum alla sem starfa innan menningar og skapandi…Lesa meira

true

Hræðileg helgi framundan í Stykkishólmi

Dagana 24. – 25. febrúar fer fram svokölluð Hræðileg helgi í Stykkishólmi. Er þetta drauga- og glæpahátíð sem haldin er í fyrsta skipti í Hólminum. „Íbúar eru búnir að búa til spennandi morðgátu sem þarf að leysa. Hvert er fórnarlambið og hver er morðinginn? Er bæjarstjórinn saklaus? Komdu í Hólminn og leystu morðgátuna!“ Ásamt morðgátunni…Lesa meira

true

Kvikmyndað í Stykkishólmi í dag

Í dag, fimmtudaginn 23. febrúar, verða í Stykkishólmi tökur fyrir kvikmyndina Snertingu. Á vef Sveitarfélagsins Stykkishólms segir að kvikmyndað verði við Skólastíg 8 og þarf því að loka Skólastígnum fyrir umferð um stund eftir hádegi vegna þessa. Þá verða einnig teknar upp senur á dvalarheimili aldraðra, í góðu samstarfi við íbúa og starfsfólk. Fyrirtækið RVK…Lesa meira

true

Meðalhraðamyndavélar væntanlegar í Hvalfjarðargöng

Eins og glöggir vegfarendur, sem fara um Hvalfjarðargöngin, hafa tekið eftir er nýlega búið að setja upp myndavélar við enda ganganna báðum megin. Skessuhorn ákvað að spyrjast fyrir um stöðu mála er varða komandi meðalhraðamyndavélar í Hvalfjarðargöngum og staðfesti G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar í skriflegu svari að búið væri að setja upp meðalhraðaeftirlitsbúnað í…Lesa meira

true

Hafró býst við að auka loðnuráðgjöf um 100 þúsund tonn

Hafrannsóknastofnun greinir frá því í dag að von sé á nýrri ráðgjöf um hámarksafla á yfirstandandi loðnuvertíð. Yfirlýsingar sé að vænta um það í byrjun næstu viku. Stofnunin vill þó upplýsa strax að verulegt magn hrygningarloðnu mældist á landgrunninu norður af Húnaflóa í loðnuleitar-leiðangri síðustu daga. „Ljóst er að mælingar undanfarinna daga munu leiða til…Lesa meira

true

Takk fyrir komuna! – Myndasyrpa

Þau voru mörg börnin sem komu við á ritstjórn Skessuhorns í dag, sungu og fengu svo nesti með heim. Takk kærlega fyrir komuna prúðu og fínu börn. Meðfylgjandi eru myndir sem Kolla Ingvars tók af nokkrum gestanna.Lesa meira