
Hræðileg helgi framundan í Stykkishólmi
Dagana 24. - 25. febrúar fer fram svokölluð Hræðileg helgi í Stykkishólmi. Er þetta drauga- og glæpahátíð sem haldin er í fyrsta skipti í Hólminum. „Íbúar eru búnir að búa til spennandi morðgátu sem þarf að leysa. Hvert er fórnarlambið og hver er morðinginn? Er bæjarstjórinn saklaus? Komdu í Hólminn og leystu morðgátuna!“