
Nýja myndavélin norðan við Hvalfjarðargöngin. Ljósm. gbþ
Meðalhraðamyndavélar væntanlegar í Hvalfjarðargöng
Eins og glöggir vegfarendur, sem fara um Hvalfjarðargöngin, hafa tekið eftir er nýlega búið að setja upp myndavélar við enda ganganna báðum megin. Skessuhorn ákvað að spyrjast fyrir um stöðu mála er varða komandi meðalhraðamyndavélar í Hvalfjarðargöngum og staðfesti G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar í skriflegu svari að búið væri að setja upp meðalhraðaeftirlitsbúnað í Hvalfjarðargöngunum. „Unnið er að fínstillingu og verið er að undirbúa kvörðun óháðs aðila. Send verður síðan út tilkynning áður en búnaðurinn verður gangsettur.“