Fréttir

true

Kári vann stórsigur en Víkingur Ó. tapaði

Kári og Víkingur Ólafsvík léku um helgina fyrstu leikina sína í riðli 1 í B deild karla í Lengjubikarnum í knattspyrnu. Kári lék á föstudaginn gegn liði KV í Akraneshöllinni og byrjuðu af krafti því Sveinn Svavar Hallgrímsson kom þeim yfir strax á fyrstu mínútu. Fylkir Jóhannsson skoraði síðan mark úr víti eftir rúmlega hálftíma…Lesa meira

true

ÍA tapaði á móti Val í Lengjubikarnum – MYNDBAND

ÍA og Valur mættust í annarri umferð í riðli 1 í A deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í hádeginu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Valsmenn komust yfir í leiknum eftir tæpan hálftíma með marki frá Sigurði Agli Lárussyni og þannig var staðan í hálfleik. Á 71. mínútu fékk Valsarinn Aron Jóhannsson rautt…Lesa meira

true

Rjúfa þurfti þjóðveginn til að koma fyrir nýju ræsi

Síðastliðinn föstudag var Stykkishólmsvegur tekinn í sundur vegna vatnavaxta ofan við kirkjugarð, milli Fákaborgar og Hamraenda. Vegurinn var grafinn í sundur svo hægt væri að endurnýja rör sem hafði fallið saman og hleypa þannig vatninu sína leið. Hjáleið var gerð um Arnarborg og Nýrækt á meðan á framkvæmdum stóð.Lesa meira

true

Alls ekki bara bókhald – KPMG heimsótt

Fyrirtækið KPMG hefur flutt aðsetur sitt á Akranesi í byggingu sem eitt sinn tilheyrði Haraldi Böðvarssyni hf. en er nú helgað Þróunarfélaginu Breið. Blaðamaður Skessuhorns leit þar við til að skoða nýju aðstöðuna og forvitnast um starfsemina. Ekki síst var áhugavert að vita af hverju þessi staðsetning var valin. Það voru þau Haraldur Örn Reynisson…Lesa meira

true

Þúsundir bolla á færibandi

Það var líf og fjör í Kallabakaríi á Akranesi á áttunda tímanum í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við að morgni bolludags. Framleiðsla á allskyns bollum var í fullum gangi í bakaríinu og þegar komin biðröð af viðskiptavinum í afgreiðslunni. Allt gekk þetta þó ljúft fyrir sig. Fyrstu bakarar mættu til vinnu klukkan tvö…Lesa meira

true

Verðmunur á matvöru eykst við samanburð á kílóverði

Í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á matvöru sem framkvæmd var 15. febrúar sl. var meiri munur á verði milli verslana en áður en í þetta skiptið var áhersla lögð á að bera saman lægsta kílóverð á vörum. Meðalverð á 113 vörutegundum var lægst í Bónus, að meðaltali 6% frá lægsta verði en hæst í Iceland, að…Lesa meira

true

Afhentu verðlaun í Eldvarnaátaki þriðja bekkjar

Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna heimsótti alla nemendur í 3. bekk í grunnskólum landsins fyrir síðustu jól, líkt og þeir hafa gert mörg undanfarin ár. Í þessum heimsóknum ræða slökkviliðsmenn við krakkana um hvernig þau geta stuðlað að betri eldvörnum á heimilum. Krökkunum var svo boðið að taka þátt í spurningaleik eftir heimsókn slökkviliðsmanna. Fimmtudaginn…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi á morgun

Blóðbankabíllinn verður á ráðhússplaninu Stillholti 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 21. febrúar frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir, sem mega gefa blóð, hvattir til að mæta.Lesa meira

true

Opnir dagar, árshátíð og námsmatsdagur í FVA

Opnir dagar í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi verða 21.-22. febrúar en slíkt uppbrot á kennslu á sér langa hefð í skólanum. Í boði verður fjöldi viðburða sem hafa það markmið að fræða og skemmta og skapa tilbreytingu í skólastarfinu. Meðal þess sem er í boði er Gettu betur keppni þar sem harðsnúið lið FVA keppir…Lesa meira

true

Vera á staðnum, fylgjast með og dokúmentera

Á síðustu 25 árum hafa á annað hundrað manns starfað á Skessuhorni, þar af um hundrað blaðamenn í skemmri eða lengri tíma. Margir hafa um leið verið að taka sín fyrstu skref í blaðamennsku, sumir haldið áfram á þeirri braut, en aðrir söðlað um og farið í önnur verk. Þó virðist sammerkt með þeim að…Lesa meira