
Haraldur Örn Reynisson og Helena Rós Sigurðardóttir í nýju aðsetri fyrirtækisins á Akranesi.
Alls ekki bara bókhald – KPMG heimsótt
Fyrirtækið KPMG hefur flutt aðsetur sitt á Akranesi í byggingu sem eitt sinn tilheyrði Haraldi Böðvarssyni hf. en er nú helgað Þróunarfélaginu Breið. Blaðamaður Skessuhorns leit þar við til að skoða nýju aðstöðuna og forvitnast um starfsemina. Ekki síst var áhugavert að vita af hverju þessi staðsetning var valin. Það voru þau Haraldur Örn Reynisson löggiltur endurskoðandi og hluthafi og Helena Rós Sigurðardóttir löggiltur endurskoðandi og verkefnastjóri sem sátu fyrir svörum. Þau starfa í Borgarnesi og á Akranesi, en þriðja útibú KPMG á Vesturlandi er í Stykkishólmi og er undir stjórn Gyðu Steinsdóttur.