
Opnir dagar, árshátíð og námsmatsdagur í FVA
Opnir dagar í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi verða 21.-22. febrúar en slíkt uppbrot á kennslu á sér langa hefð í skólanum. Í boði verður fjöldi viðburða sem hafa það markmið að fræða og skemmta og skapa tilbreytingu í skólastarfinu. Meðal þess sem er í boði er Gettu betur keppni þar sem harðsnúið lið FVA keppir við skólameistara og tvo kennara, hægt verður að fara í Paint-ball, parkour, pílu og pútt, fá að vita allt sem varðar kynlíf, en þú þorðir ekki að spyrja um, skíðaferð verður í Bláfjöll, hraðlestur og prjón, kynning á björgunarsveitarstörfum, jóga, Rush og teygjur, læra að búa til krem og maska, baka köku, sjóða súpu, logskurður og rafsuða, fablab og tækniteikning og margt fleira. Fyrirkomulagið er þannig að nemendur velja sér fjóra viðburði og skrá sig í þá á vef skólans. Kennarar bera jafnan hitann og þungann af skipulagi Opinna daga og þær Aldís Ýr Ólafsdóttir og Hildur Karen Aðalsteinsdóttir tóku það að sér í ár af mikilli fagmennsku og metnaði.