
Þúsundir bolla á færibandi
Það var líf og fjör í Kallabakaríi á Akranesi á áttunda tímanum í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við að morgni bolludags. Framleiðsla á allskyns bollum var í fullum gangi í bakaríinu og þegar komin biðröð af viðskiptavinum í afgreiðslunni. Allt gekk þetta þó ljúft fyrir sig. Fyrstu bakarar mættu til vinnu klukkan tvö í nótt og fleira aðstoðarfólk klukkan sex. Bakari sem blaðamaður ræddi við sagði að planið fyrir daginn hafi verið að baka um átta þúsund bollur, en það jafngildir ríflega íbúafjölda í bæjarfélaginu. Vatnsdeigsbollurnar eru langvinsælastar, en með fyllingu og hjúp í allskyns bragðtegundum. Sú hefðbundna, með rjóma og sultu og skreytt glassúr, selst mest, en karamellubollur, snickersbollur og bananasplitt koma sterkar inn.