Verðmunur á matvöru eykst við samanburð á kílóverði

Í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á matvöru sem framkvæmd var 15. febrúar sl. var meiri munur á verði milli verslana en áður en í þetta skiptið var áhersla lögð á að bera saman lægsta kílóverð á vörum. Meðalverð á 113 vörutegundum var lægst í Bónus, að meðaltali 6% frá lægsta verði en hæst í Iceland, að meðaltali 54% frá lægsta verði. Í um helmingi tilfella var yfir 60% munur á hæsta og lægsta verði eða í 57 tilfellum af 113 og þar af var yfir 100% munur á hæsta og lægsta verði í 32 tilfellum.

Verðmunur á matvöru eykst við samanburð á kílóverði - Skessuhorn