Fréttir

true

Barnamenningarhátíð fer fram í Borgarbyggð í vor

Undanfarin ár hefur barnamenningarhátíð verið eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Vesturlands. Sá hátturinn hefur verið hafður á að hátíðin hefur ferðast á milli þriggja svæða í landshlutanum og fór fram í þriðja skiptið árið 2022 í Snæfellsbæ. Í ár er komið að Borgarbyggð og hefur SSV sem umsjónaraðili Sóknaráætlunar Vesturlands gert samkomulag við Tónlistarskóla Borgarfjarðar um…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður gerir hönnunarsamning vegna stækkunar Brekkubæjarskóla

Síðastliðinn þriðjudag var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og verkfræðistofunnar Víðsjár um verkfræðihönnun vegna endurbóta og viðbygginga fyrstu hæðar Brekkubæjarskóla, sem er alls um 1.970 fermetrar. Þar af er viðbygging um 160 fermetrar þar sem nýtt anddyri verður byggt til vesturs og nemendatorg einnig stækkað. Endurbætur miða að því að aðlaga húsnæðið að þeim kröfum sem…Lesa meira

true

Snæfell tapaði á móti Þór Akureyri

Snæfell tók á móti Þór Akureyri í 1. deild kvenna í gærkvöldi og var leikurinn í Stykkishólmi. Fyrir leik var Snæfell í þriðja sæti deildarinnar með 26 stig og Þór í öðru sæti með 28 stig en á toppnum sat Stjarnan með 30 stig. Snæfell gat með sigri komið sér í alvöru baráttu um fyrsta…Lesa meira

true

Hægt að fylgjast með hvar enn er til eldsneyti

Aurbjörg hefur bætt við upplýsingum á samanburðarsíðu fyrirtækisins fyrir eldsneytisverð, um hvaða bensínstöðvar eru búnar með eldsneytið og verður síðan uppfærð á klukkutíma fresti. Fyrir liggur að skortur er á eldsneyti vegna verkfalls Eflingar stéttarfélags og gæti síðan því verið gagnleg fyrir almenning.  Síðuna má finna hér: https://aurbjorg.is/bilar/bensinLesa meira

true

Stefnt er að nýrri veglínu sunnan við Borgarnes

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar 9. febrúar síðastliðinn var samþykkt samhljóða að setja í auglýsingu breytingu á aðalskipulagi sem snertir lega þjóðvegar 1 sunnan við og fram hjá byggðinni í Borgarnesi. Þar með heldur áfram ferli sem stefnt er að ljúki síðsumars með því að fullmótuð tillaga verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. Í gildandi aðalskipulagi er…Lesa meira

true

Eldri borgarar fá kennslu í tæknilæsi

Símenntun á Vesturlandi hefur undanfarin misseri boðið upp á kennslu í tæknilæsi fyrir eldri borgara í landshlutanum. Ívar Örn Reynisson sá um að leiðbeina þessum hópum en það var mikið fjör þegar tíðindamaður Skessuhorns leit við í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði síðasta miðvikudag. Þá voru nemendur og kennari búin að taka forskot á sæluna með smá…Lesa meira

true

Listin að smíða vísu

Rætt við Dagbjart Kort Dagbjartsson í Hrísum, vísnahirði Skessuhorns Blaðamaður: „Sæll og blessaður Dagbjartur – takk fyrir ágætan vísnaþátt að venju. Ég á smá erindi við þig, við erum að gefa út 25 ára afmælisblað… Ég var að spá hvort ég mætti kíkja til þín til að taka stutt spjall, þar sem þú hefur fylgt…Lesa meira

true

Litið inn til Bjarna Þórs

Myndlistarmaðurinn Bjarni Þór hefur alið allan sinn aldur á Akranesi og rekur gallerí við Akratorgið. Hann hefur í mörg ár teiknað svokallað Skessuskop fyrir Skessuhornið. Þegar blaðamaður Skessuhorns leit við í galleríinu nýverið var Bjarni önnum kafinn við listsköpun sína. Hann hefur ærið nóg af verkefnum og hefur í raun ekki við að mála og…Lesa meira

true

Það er stórundarlegt þetta grúsk

Rætt við doktor Önnu Heiðu Baldursdóttur frá Múlakoti Í síðustu viku varði Anna Heiða Baldursdóttir doktorsritgerð sína í sagnfræði við Háskóla Íslands. Þar skoðaði hún tvö heimildasöfn, dánarbúsuppskriftir og safnkost Þjóðminjasafnsins. Anna Heiða lauk doktorsnáminu á einungis fjórum árum þótt meðaltalið í doktorsnámi í sagnfræðinni sé átta ár. Á lokametrunum gerði hún óvænta persónulega uppgötvun.…Lesa meira

true

Þingmenn á ferð í kjördæmaviku

Í kjördæmaviku liggur hefðbundin starfsemi Alþingis niðri. Þá skunda alþingismenn af stað í ferð um landið til að rækta tengsl við kjósendur sína og fræðast um lífið utan borgarmúranna. Á ferð blaðamanns um Breið nýsköpunarsetur á Akranesi síðdegis í dag bar að hóp Samfylkingarfólks. Á móti þeim tók forsvarsfólk Breiðar sem sýndi gestum nýsköpunarsetrið. Á…Lesa meira