Fréttir

true

Skallagrímur með sterkan sigur á Ármanni

Ármann og Skallagrímur áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í sal Kennaraháskólans í Reykjavík. Ármann byrjaði leikinn með tveimur þriggja stiga körfum en Skallagrímur náði fljótlega áttum og staðan jöfn 8:8 eftir fimm mínútna leik. Jafnt var á flestum tölum fram að lokum fyrsta leikhluta en Orri Jónsson…Lesa meira

true

Ræsið hafði ekki undan

Rétt vestan við Grundarfjörð, áður en komið er að áningarstaðnum við Kirkjufell, er lítill pollur þar sem vatn safnast saman áður en það rennur út í sjó í gegnum ræsi sem liggur undir veginn. Þar liggur líka gamli vegurinn sem nú er notaður af hestamönnum og gangandi vegfarendum. Í vatnsveðrinu og asahlákunni síðasta sunnudag virðist…Lesa meira

true

Blint veður á fjallvegum

Í ábendingu frá Vegagerðinni í morgun segir að hér um vestanvert landið verða talsverð él í allan dag og skafrenningur með hvössum suðvestan vindi  Blint verður með köflum á flestum fjallvegunum. Dregur heldur úr vindi þegar líður á daginn.Lesa meira

true

Fjallaði um sjálfstraust, vegferð og velgengni

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eiganda, stofnanda og framkvæmdastjóri Blush var með erindi fyrir fullum sal þegar FKA boðaði nýverið til fundar í Breiðinni þróunarfélagi á Akranesi. Gerður fjallaði um sjálfstraust í fyrirtækjarekstri, markaðsmál og hugrekki til að takast á við þau verkefni sem koma upp í starfinu. Um var að ræða opinn viðburð á vegum Félags…Lesa meira

true

Inga Björk hlaut viðurkenningu

Borgnesingurinn Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir hlaut um liðna helgi viðurkenningu fyrir að vera UT fjölbreytileika fyrirmynd á UTmessunni í Hörpu sem er ráðstefna fyrir fagfólk í upplýsingatækni. ,,Viðurkenninguna hlaut ég fyrir vinnu mína til þess að tryggja stafræn réttindi og aðgengi jaðarsettra hópa, m.a. vegna rafrænna auðkenninga. Ég er afskaplega hrærð og þakklát fyrir þessa…Lesa meira

true

Frumvarp um geymslu kynfruma og fósturvísa

Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem lýtur að breytingu á lögum nr. 55/1999. Frumvarpið miðar að því að virða vilja pars sem hefur í tengslum við tæknifrjóvgunarferli geymt kynfrumur eða fósturvísa. Með áformaðri breytingu verður einstaklingum heimilt að samþykkja notkun fyrrverandi eða eftir atvikum eftirlifandi…Lesa meira

true

Þorskur fyrir 141 milljarð

Útflutningsverðmæti þorskafurða á árinu 2022 voru ein þau mestu í sögunni. Í samantekt SFS kemur fram að alls voru fluttar út þorskafurðir fyrir rúman 141 milljarð króna samanborið við rúma 132 milljarða árið á undan, reiknað á gengi hvors árs. Það gerir um 7% aukningu í krónum talið á milli ára en 10% aukningu sé…Lesa meira

true

Inniveður í fyrramálið!

Í fyrramálið verður sunnan stormur á landinu; rok og sums staðar ofsaveður, 20-30 m/s. samhliða slyddu eða snjókomu. Snýst í suðvestan hvassviðri með éljum, fyrst vestantil en eftir hádegi austanlands. Hiti víða í kringum frostmark en allt að 5 stigum við suðurströndina framan af degi. Vægt frost annað kvöld. Appelsínugul viðvörun er í gildi fyrir…Lesa meira

true

Grundarfjörður í undanúrslit í Krakkakvissi

Þriðja viðureignin í átta liða úrslitum Krakkakviss var sýnd á Stöð 2 síðasta laugardagskvöld. Þar áttust við Grundarfjörður og Stjarnan og óhætt að segja að um afar skemmtilega og spennandi viðureign hafi verið að ræða. Lið Grundarfjarðar var skipað þeim Kristu Rún Þrastardóttur, Hauki Orra Heiðarssyni og Hans Bjarna Sigurbjörnssyni. Þau eru öll nemendur í…Lesa meira

true

Norðurá flæðir upp að þjóðvegi

Gríðarleg klakastífla er í Norðurá núna samhliða leysingum síðustu daga. Á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig áin flæðir yfir tún og engi, alveg upp að þjóðvegi. Rennsli árinnar mælist nú 120 rúmmetrar á sekúndu en venjulegt rennsli telst á bilinu 25-75 rúmmetrar á sekúndu, samkvæmt tölum Veðurstofu Íslands. Vænta má staðbundinna flóða víðsvegar um landið…Lesa meira