Fréttir

true

Myndasyrpa – Bóndadagskaffi á leikskólanum Akraseli

Í tilefni bóndadagsins var öllum pöbbum, öfum, langöfum og öðrum karlmönnum í lífi barnanna á leikskólanum Akraseli á Akranesi boðið í bóndadagskaffi í morgun á milli kl. 8 og 10. Þar var boðið upp á kaffi og nýbakað brauð auk þess sem hægt var að gæða sér á hákarli. Pabbar og afar létu sig ekki…Lesa meira

true

Karlakórinn Kári með nýárstónleika

Karlakórinn Kári á Snæfellsnesi byrjaði árið með hvelli og taldi í þrenna tónleika á tveimur dögum fimmtánda og nítjánda janúar. Fyrstu tónleikarnir voru í Grundarfjarðarkirkju seinnipart sunnudagsins 15. janúar og svo í Ólafsvíkurkirkju um kvöldið. Síðustu tónleikarnir voru svo í gær, fimmtudagskvöldið 19. janúar í Stykkishólmskirkju. Á tónleikunum var boðið upp á söng, glaum og…Lesa meira

true

FKA á Vesturlandi heldur opinn viðburð í Breið þróunarfélagi

Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) á Vesturlandi stendur fyrir opnum viðburði í Breið þróunarfélagi á Akranesi þriðjudaginn 24. janúar. Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi Blush og félagskona í FKA, mun þar halda fyrirlestur um sjálfstraust í fyrirtækjarekstri, markaðsmál og hugrekki til að takast á við þau verkefni sem upp koma í starfi. Viðburðurinn er opinn öllum…Lesa meira

true

Karl Björnsson hættir hjá SÍS

Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Karl Björnsson, lætur af störfum 1. maí n.k. og fer á eftirlaun. Hann hefur verið framkvæmdastjóri sambandsins í tæp 15 ár en í sex ár þar á undan var hann í starfi sviðsstjóra kjarasviðs sambandsins. Áður var hann t.a.m. bæjarstóri á Selfossi og síðar bæjarstjóri í sveitarfélaginu Árborg. „Ég er mjög…Lesa meira

true

Hvassviðri og asahláka í Grundarfirði

Nú er rigning og asahláka um allt vestanvert landið. Gul viðvörun er í gildi fram á morgundaginn fyrir allt landið. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Grundarfirði nú rétt í þessu. Þar segir Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari Skessuhorns að sé hundleiðinlegt veður; suðaustan rok og úrkoma. Götur í bænum er sumar hverja umflotnar vatni. Vegurinn til…Lesa meira

true

Suðaustan stormur fram á morgundag

Vonskuveður er á öllu landinu í dag og verður fram á morgun. Gul veðurviðvörun er í gildi fyrir allt landið en strax í fyrramálið fer viðvaranakort veðurstofunnar að taka á sig sinn venjubundna gráa lit. Veðurhorfurnar hljóða svo: Suðaustan hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s. Sums staðar snjókoma, einkum á fjallvegum. Hlýnar síðan og fer að…Lesa meira

true

Talsvert af fé að heimtast í janúar

Á liðnum árum hefur verið talsvert um að fé í Borgarfirði hafi verið að heimtast löngu eftir að síðustu heimasmölunum og leitum lýkur á haustin. Þannig heimtust á sjöunda hundrað kindur í fyrravetur úr heimalöndum í Borgarbyggð í síðbúnum smalamennskum, þar sem fáir en þess duglegri smalar með hunda sína áttu hlut að máli. Ástæðan…Lesa meira

true

Samningur undirritaður um afnot af Kviku

Í lok síðasta árs var samningur undirritaður milli Borgarbyggðar og Menntaskóla Borgarfjarðar sem snýr að aðgengi stofnana sveitarfélagsins að rýminu Kviku. Kvika er skapandi rými, staðsett í menntaskólanum, þar sem m.a. má finna mynd- og hljóðver, þrívíddarprentara ásamt tækjum og tólum til vínyl- og leiserskurðar, svo eitthvað sé nefnt. Samningurinn gildir í fimm ár og…Lesa meira

true

Staðsetning þriggja grenndarstöðva á Akranesi ákveðin

Á fundi Skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta mánudag fór Björn Breiðfjörð Gíslason verkefnastjóri yfir ábendingar sem borist höfðu vegna staðsetningar á grenndarstöðvum við Bíóhöllina, Jörundarholt og á lóð við Dalbraut 1. Skipulags- og umhverfisráð fól verkefnastjóra að halda áfram með framkvæmd við að setja niður grenndarstöðvar við Bíóhöllina og Dalbraut 1. Í stað grenndarstöðvar við…Lesa meira

true

Frábær aðsókn á æfingar hjá Undra

Nú er fjórða önn Íþróttafélagsins Undra í Búðardal komin af stað og er þessa önnina boðið upp á körfubolta, fimleika, íþróttagrunn og rafíþróttir. Frá nóvemberbyrjun hefur iðkendum staðið til boða að nýta sér frístundabíl til að komast milli Búðardals og Lauga, þar sem hluti æfinga fer fram, og hefur það gefist mjög vel, að sögn…Lesa meira