Gerður Huld Arinbjarnardóttir eigandi Blush og markaðsmanneskja ársins 2021 heldur fyrirlestur í Breið þróunarfélagi.

FKA á Vesturlandi heldur opinn viðburð í Breið þróunarfélagi

Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) á Vesturlandi stendur fyrir opnum viðburði í Breið þróunarfélagi á Akranesi þriðjudaginn 24. janúar. Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi Blush og félagskona í FKA, mun þar halda fyrirlestur um sjálfstraust í fyrirtækjarekstri, markaðsmál og hugrekki til að takast á við þau verkefni sem upp koma í starfi. Viðburðurinn er opinn öllum konum á Vesturlandi.