Myndasyrpa – Bóndadagskaffi á leikskólanum Akraseli

Í tilefni bóndadagsins var öllum pöbbum, öfum, langöfum og öðrum karlmönnum í lífi barnanna á leikskólanum Akraseli á Akranesi boðið í bóndadagskaffi í morgun á milli kl. 8 og 10. Þar var boðið upp á kaffi og nýbakað brauð auk þess sem hægt var að gæða sér á hákarli. Pabbar og afar létu sig ekki vanta á viðburðinn, bílastæðin við leikskólann fylltust og menn þurftu að leggja bílunum sínum í nálægum húsagötum. Börnin voru afar spennt að fá þessa heimsókn og fóru með sína menn út um allt til að sýna þeim leikskólann sinn en alls eru sex deildir á leikskólanum sem heita Lækur, Mýri, Tjörn, Gljúfur, Berg og Klettur.

Myndasyrpa - Bóndadagskaffi á leikskólanum Akraseli - Skessuhorn