
Við undirritun samningsins. Frá vinstri: Signý Óskarsdóttir verkefnastjóri MB, Bragi Þór Svavarsson skólameistari MB, Hlöðver Ingi Gunnarsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs Borgarbyggðar og Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri. Ljósm. MB.
Samningur undirritaður um afnot af Kviku
Í lok síðasta árs var samningur undirritaður milli Borgarbyggðar og Menntaskóla Borgarfjarðar sem snýr að aðgengi stofnana sveitarfélagsins að rýminu Kviku. Kvika er skapandi rými, staðsett í menntaskólanum, þar sem m.a. má finna mynd- og hljóðver, þrívíddarprentara ásamt tækjum og tólum til vínyl- og leiserskurðar, svo eitthvað sé nefnt.