Fréttir

true

Greiða stofnframlag til tveggja verkefna

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 14. september sl. var samþykkt að bæjarfélagið greiði stofnframlag til tveggja verkefna sem tengjast uppbyggingu á leiguhúsnæði við Skógarlund 40 og Asparskóga 3. Í fyrra verkefninu sem Brú hses. stendur fyrir er áætlað að byggja sex íbúða kjarna við Skógarlund 40. Heildarstofnvirði framkvæmdarinnar er rúmlega 315 milljónir króna og er framlag…Lesa meira

true

Septemberpútt í blíðskapar veðri

Fimmtíu og átta púttarar frá Reykjanesbæ, Kópavogi, Akranesi, Ísafirði, Hvammstanga og heimafólk mættu til leiks í Septemberpútti að Hamri í Borgarnesi 14. september sl. Mótið fer árlega fram annan fimmtudag í september. Er þetta í þriðja sinn sem mótið er haldið. Svo skemmtilega hefur viljað til að þá er alltaf blíðskapar veður. Veðurguðinn brást ekki…Lesa meira

true

Grímshús í Brákarey komið í langtímaleigu

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í síðustu viku langtíma leigusamning við Hlyn Þór Ragnarsson um Grímshúsið í Brákarey. Í Skessuhorni sem kom út í dag er ítarlegt viðtal við Hlyn Þór þar sem m.a. er rætt um væntingar hans til notkunar á húsinu.Lesa meira

true

Frumvarp um sameiningu þriggja stofnana

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi vegna sameiningar Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn (RAMÝ). „Gert er ráð fyrir að sameiningin styrki og einfaldi starfsemina og stuðli að frekari þekkingaruppbyggingu og nýsköpun, sem og eflingu starfsstöðva á landsbyggðinni. Um er að ræða hluta af áformum um endurskipulagningu…Lesa meira

true

Frítt í landsbyggðarstrætó á föstudaginn

Á bíllausa deginum föstudaginn 22. september verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó. Bíllausi dagurinn er haldinn í tilefni af evrópsku samgönguvikunni sem lýkur þennan dag. „Strætó hefur tekið þátt í samgönguvikunni með viðburðinum Bíllausi dagurinn undanfarin ár og í ár ákvað Vegagerðin að taka einnig þátt en Vegagerðin rekur og ber ábyrgð…Lesa meira

true

Fossarnir á ferðalagi

Talsvert rok er í Ólafsvík þessa stundina og ferðamenn ekkert óánægðir með að sjá fossana i Ólafsvík fjúka upp í móti, eins og sjá má á myndunum. Fossarnir fyrir ofan Ólafsvík taka á sig skemmtilega mynd og svo má sjá Bæjarfossinn fallegan kallast á við regnbogastrætið og kyssumerki Kidda bæjó!Lesa meira

true

Beiðni um opinbera rannsókn

Matvælastofnun hefur farið fram á opinbera rannsókn vegna meintra brota Arctic Sea Farm ehf. á lögum nr. 71/2008 um fiskeldi en í ágúst sl. tilkynnti fyrirtækið um tvö göt á kví við Kvígindisdal í Patreksfirði. „Samkvæmt 22. gr laganna varðar það stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra rekstrarleyfishafa sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, ef sakir eru…Lesa meira

true

Aukinn kvóti til Ólafsvíkur

Útgerðarfélagið Steinunn ehf. hefur lagt grunn að auknum umsvifum sínum í Ólafsvík með kaupum á fiskveiðiheimildum sem nema ríflega 100 þorskígildistonnum af Saltveri ehf. í Reykjanesbæ fyrir um 300 milljónir króna. Kvótanum verður bætt við veiðiheimildir vertíðarbátsins Steinunnar SH-167 og aukast með þeim umsvif útgerðarinnar til muna ásamt verkefnum nálægrar landvinnslu. Kaupin eru gerð í…Lesa meira

true

Vatnslitasýningin Blæbrigði opnuð á laugardaginn í Safnahúsi Borgarfjarðar

Fimmta samsýning Vatnslitafélags Íslands verður opnuð í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi næstkomandi laugardag klukkan 14 og verður opin í fjórar vikur á opnunartíma safnist, eða til 21. október. Sýningin hefur hlotið nafnið Blæbrigði en á henni má finna verk eftir 45 vatnslitamálara. „Okkur sem eru í stjórn félagsins fannst kominn tími til að…Lesa meira

true

Ný grunnsýning opnuð á laugardaginn í Norska húsinu í Stykkishólmi

Ný grunnsýning verður opnuð laugardaginn 23. september kl. 14:30 í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla í Norska húsinu í Stykkishólmi. Sýningin leysir af hólmi fyrri grunnsýningu safnsins sem staðið hefur yfir á miðhæð hússins síðan 2001. Í tilkynningu frá Norska húsinu segir að byggðasafnið hafi hlotið öndvegisstyrk Safnaráðs árið 2020 til að ráðast í gerð nýrrar…Lesa meira